Leita í fréttum mbl.is

Góð mistök fyrir kjaftakerlingar beggja kynja

djöfsi3Mistök og ekki mistök. Um það má deila. Meint mistök eru samt ekki skefilegri en svo, að vegna þeirra komust forvitnisjúkar illgjarnar kjaftakerlingar og heilalausar kjaftatífur í efni við sitt hæfi. Það getur varla annað verið en kjaftakelingar beggja kynja gleðist við að fá að blaða í kúnstugum og kynlegum SMS sendingum þjófa, morðingja, dópsala, þingmanna, hórkarla og kvenna, nærbuxnalausra aðila og geðsjúklinga. Reyndar telja hámenntaðir fræðimenn, að þeir sem hafa yndi og unað af að grúska í SMS-skeytum annars fólks, sameini í fari sínu allt það versta sem ofangreindir minnihlutahópar hafa til að bera.

Í dag er mikil örvænting og sorg í brjóstum góðs fólks eins og frú Ingveldar og Kolbein, Máríu Borgargagns og Handreðsins, Óla Apakattar og Brynjar vonulyktar því þau hafa öll verið viðskiptavinir Vódafóns og sent sín á milli fjöldan allan af kjarnyrtum blautlegum SMS-skilaboðum. Án efa munu kjaftatífurnar iða í skinninu og nudda rössum sínum og nágrenni fast við stólseturnar þegar þær fara yfir áminnst skeyti og kryfja þau til mergjar sín á milli.

Að þessu sögðu má slá föstu að mistök Vódafóns eru góð mistök ...
mbl.is Viðurkenna „skelfileg“ mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það er bara gamli sveitasíminn.is.  

Það er víst ekkert grín fyrir að vera í vanþróuðu og Alþjóðabankamafíu-ræningjastýrðu samfélagi.

Annars hef ég persónulega meiri áhyggjur af bankarændum og húsnæðis-útskúfuðum á Íslandi, árið 2013. Nánar tiltekið sýslumanna-lögmanna-útkösturum Mammon-bankaræningja-djöfulsins. Til dæmis á aðfangadag jóla, þann 24 desember næstkomandi.

Það er ekki verra fyrir eiturlyfjamafíuna að hafa svona Alþjóða-hótanabanka til að stilla fólki upp við vegg, sem hefur fallið í þá "hræðilegu og ófyrirsjáanlegu" gryfju, að vera mannlegir og breyskir gallagripir, eins og allir mannlegir gera á lífsleiðinni.

Þarna var hringnum líklega lokað, og staðfesting liggur fyrir, á því að allir eru í raun í sama gallagripa-liðinu. Það var ekki seinna vænna að átti sig á karma-lögmálum almættisins algóða, hverju nafni sem mannskepnu-gallagripirnir vilja kalla þá almáttugu karma-alheimsorku.

Það er víst lítið minnst á karma-lögmálið í opinberlega reknum grunnskólum þessa "sannkristna" lands, og þörf að skoða þá opinberu skyldublekkingar-stefnu með gagnrýniauganu réttláta og sanngjarna.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.12.2013 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband