Leita í fréttum mbl.is

Viðsjárverður þrjótur loks afhjúpaður

jail1.jpgÞar kom að því, að einhver sómakær einstaklingur hefði í sér döngun og þor til að afhjúpa þann viðsjárverða þorpara og þrjót, Guðmund Guðmundsson handknattleiksþjálfara. Og það þurfti hugdjarfan mann eins og Djúsíbjev til að upplýsa ósómann og birta hinn ótrúlega langa lista, hvar glæpir Guðmundar eru rækilega tíundaðir, einn af öðrum í óslitinni röð uppá tugi metra af bréfsefni.

Mér segja lögfróðir menn, að samanlagir glæpir á umræddum lista varði tugthúsvist í minnst 83 ár, svo að Gvendur þjálfari má fara að setja allt sitt hafurtask niður í töskur og undirbúa sig vel fyrir langa, langa vist í þrælakistunni og svartholinu. Enda eiga svona karla ekkert annað skilið, svo fremi að glæpalistinn, sem Djúsíbjev hefur skilmerkilega ritað niður í margar stílabækur, sé á rökum reistur.


mbl.is Dujshebaev: Listi yfir glæpi Guðmundar er langur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband