Leita í fréttum mbl.is

Útjaskaðar heiðurskvinnur

rat4.jpgEkki er víst nóg með að blessuð gamla Framsóknarmaddaman og Fjallkonan okkar séu báðar útjaskaðar og komnar af fótum fram af hórdómssökum og sjúkdómum sem allur þessi hór hefir sýkt þær af, heldur er Ísland sjálft, eins og það leggur sig, að fara sömu leið og ofangreindar tvær heiðurskvinnur. Í sjónmáli er ekki nokkur skapaður hlutur, að manni skilst, sem gæti bjargað Íslandi frá að drepast útaf úr sömu sjúkdómum og Framsóknarmaddaman og Fjallkonan. En það verður víst að hafa það að landið sökkvi ásamt manni og mús í sama fjóshauginn og allt annað; það er ætíð svo undur hjartnæmt og fallegt þegar hlutirnir falla hver að öðrum í listrænu samræmi.

Vér getum þó þrátt fyrir allt vont og hræðilegt huggað oss við að frú Ingveldur og Máría Borgargagn eru langt í frá á leiðinni að verða útjaskaðar þó svo þær hafi látið vaða linnulaust á súðum í allnokkra áratugi.
mbl.is Ísland er að verða útjaskað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband