Leita í fréttum mbl.is

Vandræðamenn sem ber að afmá áður en tjón hlýst af

flad_1243096.jpgHvurn fjandann er þessi umboðsmannsleppalúði að senda fólki bréf svona rétt eftir verslunarmannahelgi? Honum dettur greinilega ekki í hug, að viðtakendurnir séu rottimbraðir og illa fyrirkallaðir eftir jörvagleðisukkið og hafi aungva heilsu til að lesa bréf og enn síður til að svara þeim? Þetta tillitsleysi og frekja umboðsmannsins er þess eðlis, að ekki verður við unað. Ef einhver töggur væri í sléttgreiddu liðleskjunum og prumphænsnunum í Heimdalli væri það unga fólk nú þegar á leiðinni til umboðsmannsins þeirra erinda að bera hann útaf skrifstofu sinni og varpa honum eins og blindum hvolpi í Reykjavíkurhöfn.

Og Hanna Birna og Sígmúndur Dávíð eru önnum kafið fólk. Í allt sumar hafa þau, hvern rúmhelgan dag, gólað og grénjað framan í þjóðina, en sem betur fer hafa þau getað lifað sig inní þann góða sið að grilla á kvöldin og féngið sér hvítt og rautt í glas. En um verslunarmannahelgina - um verslunarmannahelgina - fór þetta elskulega, jákvæða, hógværa og glaðlega fólk útá skverinn, kómu víða við og glöddu marga með innilegri og mjúkri nærveru sinni. Meðal annars heimsóktu þau Sígmúndur og Hanna Birna heimili flokkssystkyna sinna, þeirra frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns, og þá varð kátt í höllinni. Jamm ...

En þessi ekkisens umbosmaður er fyrst og fremst vandræðamaður, sem verður að afmá, ásamt ríkissaksóknara, DV og Bjarna Ben áður en tjón hlýst af framgöngu þessara leiðinlegu aðila.
mbl.is Sigmundur og Hanna Birna fá bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband