Leita í fréttum mbl.is

Og ætla saman í gleðigönguna á morgun

sira.jpgAð sjálfsögðu styður Elliði Vignisson Hönnu Birnu heilshugar, enda ætla þau saman í gleðigönguna á morgun. Þau ætla að vera eins og hinir í fremstu víglínu göngunnar, nema að því leyti að þau ætla að veifa helbláum borðum í stað þessara hefðbundnu röndóttu og bröndóttu.

En áður en Elliði hleypur á nærbuxunum í gleðigönguna, ætlar hann í beinni útsendingu, að flengja Vilhjálm Eglisson og Þóru Kristínu í Vikulokunum hjá honum Hallgrími Thorsteinsson á RÚV Sérstaklega hlakkar Elliða til að hafa endaskifti á Vilhjálmi og veita honum svipaða ráðningu og hann veitti litlu frú Sóleyju Tomm fýlí-romm-bomm-bomm í þætti hjá Mikjáli Torfa á Stöð 2. síðastliðið vor. Já hann Elliði kann sko sitt fag, því hann gaf Sóleyju litlu slíkt grandmaster drag í afturendann, að jafnvel færasta dragdrottning gæti ekki leikið það eftir.

Já, piltar mínir, það verður sjón að sjá þegar Elliði og Hanna Birna plampa niður Laugaveginn á morgun, með Kjarra, Hanez og Bjössa í eftirdragi eins og roggin seppatetur.
mbl.is Elliði kemur Hönnu Birnu til varnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband