Leita í fréttum mbl.is

Bjóða fólki að hella það blindfullt í gegnum netið

reiðÞetta er eflaust ,,ótrúlega spennandi og skemmtileg" af þeim sökum, að sumum þykir alveg ótrúlega spennandi og skemmtilegt að spila með grandalaust fólk og reyta af því pénínga eins og fjaðrir af gæsum.

Dörtítrixin, sem allrahanda kínalífselexsírsbruggarar færa í búning ,,hugrænnar atferlismeðferðar" virðast ótæmandi og endalaus fyrir skapandi athafnafólk með prófgráður frá hinum og þessum pungaprófsháskólum og árangurinn náttúrúlega eftir því. En þegar ágengir péníngaplokkarar þykjast geta svæft norðmenn í gegnum netið er skörin farin að færæst allmikið um of uppí bekkinn. Ég er mest hissa á að þessir atferlismeðferðardólgar skuli ekki vera farnir að bjóða vínhneigðu fólki uppá að hella það auga-blindfullt í gegnum netið og lofa því timburmönnum og öllu tilheyrandi á eftir.
mbl.is Íslendingar hjálpa Norðmönnum að sofa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband