Leita í fréttum mbl.is

Hortugur húskarl ber þjóð sína þungum sökum

xd10.jpgFáir eru kunnugri hatursumræðu, grimmd og ódrengskap í þjóðfélagsumræðunni, en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, enda er hann gerður útaf öflum, sem ber eru af útlendingaandúð, lygum, hálfsannleik og stórlygum. Heldur þessi kúnstugi húskarl gömlu Framsóknarmaddömunnar, að allir séu búnir að gleyma hatrinu og offorsinu, sem hann og hinir húskarlarnir og griðkurnar, sem eru til heimilis í Framsóknarfjósinu og Framsóknarfjóshaugnum, beittu á síðasta kjörtímabili?

Ónei, það hafa ekki allir gleymt íllskunni, lýginni og drulluskapnum, sem vall uppúr því hyski linnulaust í fjögur ár í stað þess að iðrast og skammast sín eftir öll skemmdarverkin sem þau unnu á samfélaginu árin þar á undan, að ógleymdu hruninu, sem gamla Framsóknarmaddaman og hennar trantaralýður á gifturíkan og ógleymanlegan þátt í. Og það er hinn lítilsigldi húskarl,sem þarf að læra að skilja, að hann á á hættu að hitta sjálfan sig fyrir á sama hátt og Hanna Birna hitti sjálfa sig fyrir í lekamálinu. Sjálfvirka réttlætislögmálið mun sjá fyrir því. Nei Sigmunur Davíð, þú ættir fremur að spara hortugheitin gagnvart þjóðinni, sem þú segir að íllsku sinnar vegna ætti að læra af lekamálinu, og skíða umsvifalaust ofan í fjóshauginn heima hjá þér, afturábak með lafnadi tungu, svo vitnað sé í ljóð þjóðskáldsins.

Það er nefnilega alrangt hjá drengnum, sem fyrir skysni örlaganna varð forsætisráðherra eftir síðustu kosningar, að það var ekki hatur og grimmd þjóðarinnar, sem hrakti Hönnu Birnu úr ráðuneyti innanríkismála. En vera má, að hneykslun, réttlætiskennd og siðferðisvitund þessarar sömu þjóðar hafi átt sinn þá í að Hanna Birna og hennar liðssveit hitti sjálf sig fyrir og hrapaði fyrir björg, á eftir Hruninu, en niðurfyrir sama hengiflug er för Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben líka heitið.


mbl.is Þjóðin læri af lekamálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Ingólfsson

Ég hjó einmitt eftir þessum orðum forsætisráðherra um "grimmd og ódrengskap". Vitanlega er alvarlegt mál ef innanríkisráðherra hefur verið sýnd "grimmd og ódrengskapur" og nauðsynlegt að forsætisráðherra skýri mál sitt; við hvern hann eigi við, svo hægt sé að draga hina seku til ábyrgðar. Geri forsætisráðherra það ekki, verður líklega að líta á orð hans sem innantómar dylgjur og slúður - og þannig forsætisráðherra vill þjóðin varla hafa eða hvað?

Helgi Ingólfsson, 21.11.2014 kl. 23:13

2 Smámynd: Aztec

Helgi, það er ekkert leyndarmál að hér sé átt við sorpsnepilinn DV og tengdu hyski (Samf. og VG).

Hanna Birna er saklaus, en henni hefur verið slátrað til að friðþægja lægstu hvötum meindýranna. Mér fyndist heppilegra ef vingullinn Bjarni Ben hefði sagt af sér, enda með eindemum arfaslakur. Hanna Birna hafði bein í nefinu, en neyddist til að segja af sér. Hvort gjammið í hýenum stjórnarandstöðunnar hljóðni við það, er alls óvíst.

Það er ekki hægt að gera stjórnarandstöðunni til geðs, svo að ríkisstjórnin ætti alls ekki að gera neitt í þá átt. Fyrst heimtaði stjórnarandstaðan að Hanna Birna segði af sér embætti og svo loksins þegar hún gerði það, þá var stjórnarandstaðan óhress með það líka, sbr. orðalag skrípisins Birgittu, því að eitt er víst, að nú þegar hún er ekki lengur ráðherra, þá þarf hún ekki lengur að svara einu né neinu, þótt pakkið (stj.andst. og sorapressan) verði bæði blátt og rauðþrútið í framan.

Og varðandi fyrrv. lögreglustjóra, Stefán: Hefur nokkuð verið rannsakað hvort hann hafi verið að segja satt? Hann veit eins og er að engin hljóðupptaka var í gangi og þá geta menn haldið hverju sem er fram án þess að óttast það að lygarnar komist upp.

Aztec, 21.11.2014 kl. 23:38

3 Smámynd: Aztec

Og ég vil benda á að ég hef aldrei kosið stjórnarflokkana á ævi minni, hvað þá stjórnarandstöðuna, svo að ég ber enga ábyrgð á neinni ríkisstjórn í sögu lýðveldisins. Ég er ekki flokksbundinn og hef sem einn af sótsvörtum almúganum engra hagsmuna að gæta nema minna eigin, og mínir hagsmunir ganga út á það að vernda mig og fjölskyldu mína gegn pólítískum fábjánum.

- Pétur D.

Aztec, 21.11.2014 kl. 23:49

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Pétur D. Þessi orð þín eru í tíma töluð og dagsönn.Ég varð ramm pólitísk,þegar Samfylkingin og Steingríms Vg.ætluðu með ofbeldi að troða okkur í ESB og neyða til að borga Icesave. Sannarlega efast ég einnig um Stefán. Svo væri fróðlegt að vita í fyrsta lagi hvað Gísla Frey gekk til,í öðrulagi hvers vegna hann fór með bréfsnifsið til tveggja blaða. Í þriðja lagi var það úthugsað vegna þess að einhver einn borgaði honum fyrir.Er ekki allt falt fyrir peninga. 

Helga Kristjánsdóttir, 22.11.2014 kl. 02:57

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

"Það er nefnilega alrangt hjá drengnum, sem fyrir skysni örlaganna varð forsætisráðherra eftir síðustu kosningar, að það var ekki hatur og grimmd þjóðarinnar, sem hrakti Hönnu Birnu úr ráðuneyti innanríkismála. En vera má, að hneykslun, réttlætiskennd og siðferðisvitund þessarar sömu þjóðar hafi átt sinn þá í að Hanna Birna og hennar liðssveit hitti sjálf sig fyrir og hrapaði fyrir björg, á eftir Hruninu, en niðurfyrir sama hengiflug er för Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben líka heitið."

Tek fyllilega undir þetta. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.11.2014 kl. 07:08

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þar aðstoðarmaður innanríkisráðherra sem sýni af sér grimmd og ódrengskap gagnvart Tony Omos og Evelyn Glory Joseph.

Einhvernveginn virðist það vera fljótt að gleymast um hvað þetta mál í raun og veru snerist: einelti á hendur útlendingum sem var stundað og stjórnað úr innanríkisráðuneytinu.

Hvernig útlendingagóðum krötum hefur tekist að sjá ekki þá vídd á málinu segir allt sem segja þarf um einlægni þeirra.

Guðmundur Ásgeirsson, 22.11.2014 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband