Leita í fréttum mbl.is

Eins og óalandi dýrbítur og skaðræðiskvikindi

finnur2.jpgÞetta er dálítið merkileg þula hjá Vigdísi Hauksdóttur, ekki síst vegna þess að hún ku vera formaður fjárlaganefdar Alþingis og hefir í þokkabót nokkurra ára þingsetu að baki. Þrátt fyrir þingreynslu, að sjálfsögðu óverðskuldaða, og nafnbótina ,,formaður" fjárlaganefdar virðis algjörlega hafa farið framhjá Vigdísi, að flestar, ef ekki allar, ríkisstofnanir hafa verið skornar gjörsamlega innað beini og rúmlega það, þannig að þær eru á mörkum þess að vera starfhæfar. Flestir hafa til dæmis einhverja nasasjón af ástandinu í heilbrigðismálum landsins, landflótti brostin á í stéttum lækna og hjúkrunarfólks og nú síðast var stóð sjálfur byskubbinn í stólnum og grét hörmulega stöðu kirkjusókna. Á milli stofnanna heilbrigðis og byskubba er síðan urmull af fjársveltum ríkisstofnunum, sem vart er annað eftir af en skjátan ein.

Ef einhverskonar vitglóra af einhverju tagi væri í höfðinu á meintum formanni fjárlaganefndar myndi hann auðvitað ekki orða hlutina með þessum hætti. Heiðarlegra væri af þessum kúnstuga fulltrúa auðvaldssérhyggjunnar, að leggja hreinlega til, að hinar og þessar stofnanir á snærum ríkisins verði lagðar niður og læknum, byskubbi og forsvarsmönnum ríkisstofnanna og starfsmönnum sagt að fara til Andskotans. En auðvitað er útí hött, gjörsamlega fráleitt, að kalla eftir heiðarleika af formanni fjárlaganefndar og flokkssystkynum hans, hvar óheiðarleiki, fals og ruddaskapur er talinn til dyggða, já og gott ef ekki kristindómur.

Þó svo að Framsóknarmaddaman sé sjálf löngu lögst í kör og haldið lifandi af nafninu til með stórum inngjöfum af innistæðulausum kosningaloforðum, fláttskap og sérhyggjuóþrifnaði, og samvinnuhreyfingin og samvinnuhugsjónin komin í vasa forhertra auðvaldsperverta, þá halda talsmenn þessarar auðvirðilegu glæpaklíku því fram, að félagsskapur þeirra, Framsóknarflokkurinn, sé stjórnmálaflokkur, meira að segja miðjuflokkur og félagshyggjuflokkur! Það er varla hægt að ganga lengra í hræsni og ómennsku. Og þegar við bætist í fjóshauginn opinber kynþáttahyggja og fasismi er mál til komið að slá Framsóknarflokkinn af eins og óalandi dýrbít og skaðræðiskvikindi.


mbl.is Hagsmunaöfl í vegi hagræðingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband