Leita í fréttum mbl.is

Gríðarfögur hugjón á spenanum

peningar4Það má nú segja, að það sé stór, og umfram allt gríðar fögur hugsjón, að leggja sitt að mörkum í hinni óeigingjörnu nauðsynjavinnu við að brjóta niður grunnstoðir samfélagsin og eyðileggja þær á altari frjálshyggjukapítalismans, því ekki verður við unað að búa við kommúnism í menntamálum. Það er nefnilega svo mikið frelsi fólgið í að almenningur búi við ásættanlega mismunun, því meiri mismunum því betra. Og þótt framlag Tjarnarskólafraukanna sé ekki stórt í einkavæðingarleiknum, þá vita niðurbrotsmenn samfélagins að dropinn holar steininn.

Nú er það svo, að einkavæðingartröll samtímans stunda ekki einkarekstur uppá eigin spýtur, þegar grunnstoðir eru molaðar niður, heldur leggst þetta hugsjónafólk á ríkisspenann og tottar fast. Sameiginlegir sjóðir landsmanna eru látinir borga alla tjarnarskólana, hjallastefnurnar og ásdís-sinnum-höllu heilsubælin. Síðan rukka einkavæðingarskjóðurnar nemendur, leikskólabörnin og sjúklingana að auki. Þetta fyrirbrigði heitir ríkisspenaeinkarekstur og er í raun argasta afturhald, því þeir sem að þessum ófögnuði starfa aðhyllast þjóðskipulag sem var við lýði á nítjándu öld.

Best væri að hinar einkavæddu tjarnarkerlingar og þeirra líkar stunduðu sína samfélagseyðieggjandi einkavæðingu án allra fjárframlaga úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Raunar jaðrar það við óhugnanlega starfssemi, sem ég vil helst ekki nefna hér, að allskonar frjálshyggjukroppinbakar og péníngagéðsjúklingar skuli geta stafnað ójafnaðarfyrirtæki og sótt milljarða á milljarða ofan í ríkissjóð og sjóði sveitarfélaga. Það þarf svo sannarlega að greiða einkavæðingar- og frjálshyggjuafturhaldsslektinu svo vænt rothögg, að það liggji meðvitundarlaust í eigin drullusvaði til eilífðarnóns.


mbl.is Lítill skóli með stóra hugsjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes.

Hver var/er munurinn á niðurrifs-öfgarugli Nasisma og Kommúnisma? Þegar löngu skipulagða framtíðareinokunar-Alþjóðabankanum þótti henta, og þykir enn henta, að útrýma heilu trúarbragða/þjóðflokkunum? Í réttlætingar-nafni "nauðsynlegrar" Djöflapeningafölsunar-græðgi og spilavítiskauphalla-"fjárfestinga"?

Helsjúkrar peningafölsunar-siðblindu, í svokallaðri "seinni heimsstyrjöld", og enn þann dag í dag?

Siðferðislega og mannúðlega alveg óverjandi! Í lagaklækja-skjóli siðblindra DÓMARA-VALDADRUSLNA, og áhangandi lögfræðingadóts?

Hvenær stoppaði raunverulega þessi svokallaða "seinni heimsstyrjöld" lygafjölmiðla kauphalla-bankaráns-heimsveldisins? (falda djöflavaldsins).

Hvaða orka er við heimsveldis-stjórnarstýrið?

Orka Djöfulsins sjúka, gráðuga, ljúgandi, svíkjandi, niðurbrjótandi og rænandi?

Eða orka almættisins algóða, sanna, trygga, uppbyggjandi og gefandi?

Það er í valdi hugarorku/óska/bæna jarðarbúa allra, að trúa á og tilbiðja frekar góðrar orku vald, heldur en slæma orkuvaldið.

Móðir Jörð deyr ef hatursorkan í heiminum verður ekki stoppuð, með hugarvirkjaðri kærleiksorkunni.

Það er erfitt fyrir mig að viðurkenna þetta. Vegna þess að ég ber ábyrgð á að hafa of oft leyft illum öflum og dómhörku að rífa mig og aðra niður. Það eigum við líklega sameiginlegt Jóhannes, ásamt því að hafa trúað á heiðarleika "Vinstri Græna" forystumenn/konur, í stærstu kosningasvikum allra tíma, árið 2009.

Flokkur Móður Jarðar, sumir framboðsfélagar flokksins og kjósendur hans, voru sviknir af forystufólki þess flokks?

Móðir Jörðin er jafn mikið lifandi/dauð, eins og við sem  förum með sálarhugbúnað og framkvæmdir á Móður Jörðinni! Enginn lifir á siðlausum prófgráðunum einum og sér, því fræin af þeim eru ekki lífsfræ jarðarinnar.

Ég ber ábyrgð á ráðstöfuninni á verkum/hugbúnaðar-orkunni minni.

Þú berð ábyrgð á ráðstöfuninni á verkum/hugbúnaðar-orkunni þinni.

Hvar er einfaldleiki kærleikans valdamesta raunverulega kenndur í þessu samfélagi, sem stundum er kallað Íslenskt sið-menntað samfélag?

Hvað segja Háskóluðu Hæstaréttar-forsetar Íslands um það? Bera þeir ekki líka ábyrgð á sínu eigin siðferði, orkuverkum og gjörðum?

Eru þeir á einkavæðingarspenanum, í stóra samhenginu? Þessir toppar valdapíramídans á Íslandi?

Ég bið almættið algóða að leiðbeina okkur vitleysingunum öllum, hér á Jörðinni, því við höfum ekkert vit á því sjálf, að stjórna okkur hjálparlaust og rétt, til friðar og kærleika, án alheims-almættisins blessun og vernd.

Líklega skilur enginn hvað ég er að segja og meina. Það verður þá bara að hafa það. Ætli sé ekki laust pláss á geðdeild siðmenntaða samfélags-spítalans, fyrir fólk eins og mig?

Nú lokar þú líklega á gráðulausan vitleysinginn mig, hér á blogginu þínu Jóhannes, og skyldi engan undra það. Svona óhefðbundna lífssýn er víst varla mögulegt að virða/viðurkenna, í virtum/viðurkenndum Háskólum heimsveldisins, né hjá leyfðu "virtu" Gallupaxa-skoðanamyndandi ólýðræðislegu samfélagsmiðlunum.

Takk fyrir mig.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.5.2015 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband