Leita í fréttum mbl.is

Sérsveitin hljóp illilega á sig. Dómsmálaráðherra verður að rannsaka mistökin

polis3.jpgHvernig í fjandanum getur staðið á því, að sérsveit lögreglunnar skuli rjúka upp til handa og fóta og ráðast á káta krakka, sem voru að æfa sig í skotfimi við Þingvallavatn, af því að kófdrukknir fylliraftar, sem klöguðu krakkana, þóttust vera að veiða þar á stöng? Sem betur fer er svona æðibunugangur fáheyrður, en eitthvað hljóta stangveiðidólgarnir eiga innangengt í herbúðum lögreglunnar fyrst tekið er mark á ölæðisþruglinu í þeim. Þessar aðfarir eru í sannleika sagt hreint og beint hneyksli!

Ekki var sérsveitin send á vettvang þegar Kolbeinn Kolbeinsson skaut átta skotum í hefndarskyni af haglabyssu á eftir Brynjari Vondulykt í vetur, af því að Kolbeinn hélt að Vondalyktin hefði verið að atast í frú Ingveldi á óviðurkvæmilegan hátt. Ónei, þá sat sérsveitin sem fastast heima hjá sér, þrátt fyrir að allir nágrannar Kolbeins hringdu skelfingu lostnir í belg og biðu í höfuðstöðvar lögreglunnar útaf skothríðinni. Raunar var Kolbeinn í svo annarlegu ástandi, rétt eins og fylliraftarnir á bökkum Þingvallavatns, að honum tókst ekki að koma nema einu hagli á Vondulyktina, öll hin misstu marks. Að vísu skemmdust bílar og rúður brotnuðu í nærliggjandi húsum þegar höglin buldu á þeim, en aðeins eitt þeirra hæfði Brynjar Vondulykt, að vísu á óheppilegan stað, en þetta eina hagl rataði þó í mannhelvítið.

En úr því að sérsveit lögreglunnar þursti af stað, þá átti hún auðvitað að taka brennivínsveiðimennina með stengurnar úr umferð en láta krakkagreyin eiga sig. En það er ekki sama Jón og séra Jón og því fór sem fór. Ef dómsmálaráðherra væri með eitthvað sem líktist beini í nefinu, myndi hann leysa sérsveitina upp núna strax fyrir hádegi og láta handtaka yfirmennina, sem augljóslega bera ábyrgðina á þessum alvarlegu mistökum.


mbl.is Sérsveitin handtók ungmenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórarinn Snorrason

Enginn æðibunugangur heldur standard vinnubtögð. Yfirleitt þegar um vopnaburð er að ræða þá er sérsveitin send á vettvang, gildir einu um aldur viðkomandi enda kemur það málinu ekkert við enda alveg jafn hættulegt ef óvanir iðkendur eru að leika sér með byssur sama hvaða aldri þau eru á.

Þórarinn Snorrason, 4.8.2015 kl. 12:21

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Jahh þú segir það, Þórarinn.

Jóhannes Ragnarsson, 4.8.2015 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband