Leita í fréttum mbl.is

Samtök dýraníðinga

kú4Nú ku dýraníðingar vera búnir að stona með sér samtök til að berjast fyrir réttindum þeirra. Að sögn níðinganna þá finnst þeim sem þeir sitji ekki við sama borð og aðrir landsmenn og séu fórnarlömb fordóma, fáfræði og illgjarns hugarfars. Þá hafa þeir í hyggju að efna næsta sumar til eigin gleðigöngu með lúðrasveit í fararbroddi og skrækjandi kvikfénað í göngunni miðri. Þessa daganna er verið að semja við tilvonandi fjölmiðlafulltrúa samtakanna sem jafnframt mun sjá um bókhaldið og húsnæðið sem illmenni eru strax farnir að kalla ,,svínastíuna."

Forsvarsmenn dýraníðingasamtakanna segja að ekki sé enn tímabært að þeir stofni stjórnmálaflokk eða senda einhvern félagsmann í forsetakosningar enda nægi núverandi stjórnmálaflokkar fyrir þá. Baráttan gegn fordómunum verði fyrsta kastið aðalviðfangsefni samtakanna og á þeim vettvangi sé mikið starf óunnið.

Um náungann sem hengdi kvíguna sína segja talsmenn dýraníðinga að hann hafi sennilega farið yfir strikið og óvíst sé að hann sé dýraníðingur. Líklegra sé að manngarmurinn sé illa haldinn af sadisma og fautaskap, þessháttar fantar eigi ekki erindi í þeirra samtök.


mbl.is Aðeins Matvælastofnun má kæra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes. Þú ert nú eldri en tvævetur unglingur.

Þú skilur væntanlega að Bretaveldið er ótrúlega óvægið áróðursapparat?

Og ekki er sparnaður á döfinni hjá dópframleiðslu-heimsveldinu sykursjúka og helgráðuga?

Ekki gleyma að Bretaveldi bjó til krabbamein, með markaðssetningu sinni á sykurrófu-afurðinni!

Ég endurtek: þú skilur vonandi hvað ég er að tala um?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 18.3.2016 kl. 20:33

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú ert orðinn allt of kærulaus í rithætti, Jói, skrifar: "vað sama borð". Maður skrifar ekki "vað", heldur veðveð sama borð, eins og þú átt að veta.

Annars ætla ég ekkert að fara að ritrýna frekar þessa undarlegu grein þína, eina af mörgum.

Jón Valur Jensson, 19.3.2016 kl. 04:00

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þakka þér ábendinguna Jón Valur. Búinn að leiðrétta.

Það er rétt að þessi pistill er undarlegur, enda var ég í vafa um hvort ég ætti að birta hann. En þar sem mér virðist áskapað að sjá hlutina, meira að segja háalvarlega hluti, frá ýmsum sérkennilegum sjónarhornum, þarf kanske ekki að undra þótt svona súrrealismi slæðist með.  

Jóhannes Ragnarsson, 19.3.2016 kl. 07:57

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jæja, játar loksins á þig skömmina, löngu kominn tími til, en ég fer ekkert ofan af því, að þú varst orðinn hneykslanlega kærulaus hér í meðferð málsins, þótt annað hjá þér sé ljúft og gott. En ef þessu linnir ekki, fer ég að kæra þig til hans Eiðs Guðnasonar, og þá áttu ekki á góðu von, óbermið þitt og málníðingur!

Jón Valur Jensson, 19.3.2016 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband