Leita í fréttum mbl.is

Klappstýrur Jón Ásgeirs

TilberiÞað var nú varla von til að slitastjórn Glitnis heitins hafi tekist að hafa uppá snekkju Jóns Ásgeirs þaar eð það fólk hafði lítinn tíma aflögu vegna anna við að sópa til sín péníngum, milljonir og aftur milljonir, ofan í sína eigin vasa. Þar að auki er vafasamt í meira lagi að umræddir slitabændur myndu þekkja snekkjnuna miklu frá venjulegum íslenskum ísfisktogara. En allt um það, þá engu líkara en slitastjórninni mistekist frábærlega að hafa höndur í hári Jóns Ásgeirs, sem þó er allnokkuð, og hann valsar enn um sviðið eins og ekkert hafi í skorist.

Einkathotur-rikisstj-geir_1152654354Um skeið, að minnsta kosti í nokkur krítísk ár, var Jón Ásgeir sérlegur ástmögur Samfylkingarinnar, sem var eins og menn muna ákafur klappstýringarhópur blessaðrar útrásarinnar og útrásarvíkinganna, þó svo að sömu aðilar vilji um þessar mundir ekkert við það kannast. Samt sem áður sendi krataskiturnar meira að segja formann sinn í nafni Samfylkingarinnar útum víðan völl og alla heima og geima eins og landafjanda til að kunngera heimsbyggðinni á árunum fyrir Hrun, að allt væri í stakasta lagi í efnahagslífinu á Íslandi og bankarnir svo heilsuhraustir að einna helst væri um ofheilsu að ræða á þeim bæjum. Í dag eru þessi klappstýrugægsn á tvist og bast, sumir enn á mála hjá Samfylkingunni, aðrir í Björtu framtíðinni hans Gvöndar og enn aðrir á flugi með Pírötum og VG, og hafa helst afan af fyrir sér með því að hamra á því að forseti Íslands, sjálfur félagi Ólafur Ragnar Grímsson, hafi sjálfur verið klappstýra útrásarvíkingana jafnvel mesta og besta klappstýran þeirra.

Það er því ekki fríður flokkurinn sem við höfum í eldlínunni til að steypa auðvaldstólunum sem nú sitja í ríkisstjórn niður í ystu myrkur. Fyrir vikið erum vér Íslendingar staddir milli tveggja auðvaldselda og vitum vart í hvorn fótinn vér eigum að stíga. Að taka afstöðu í íslenskri pólitík í dag er eins og að velja milli þess hvort maður vilji frekar snakk en tilbera inná heimilið til sín.   


mbl.is Leituðu snekkju Jóns Ásgeirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Kr

Þú skrifar "Jón Ásgeir sérlegur ástmögur Samfylkingarinnar, sem var eins og menn muna ákafur klappstýringarhópur blessaðrar útrásarinnar og útrásarvíkinganna, þó svo að sömu aðilar vilji um þessar mundir ekkert við það kannast. " Getur þú útskýrt af hverju Jón Ásgeir var að styrkja Sjálfstæðisflokkurinn í gegnum FL Group um háar upphæðir ef hann var sérlegur ástmögur Samfylkingarinnar. 

Sjá: http://www.visir.is/fl-group-styrkti-sjalfstaedisflokk-um-thrjatiu-milljonir/article/2009785301372

Jónas Kr, 21.4.2016 kl. 13:24

2 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Einhver hafði orð á því í mín eyru á sínum tíma að Borgargagninu á Bessastöðum hafi ekki þótt leiðinlegt að fljúga með 365 kripplingnum í einkaþotuni á milli landa 

Níels A. Ársælsson., 21.4.2016 kl. 13:29

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nei, ég get ekki útskýrt af hverju Jón Ásgeir og FL Gúppan hans styrktu Sjálfstæðisflokkinn, en hann er kanske svona aumingjagóður.

Annars minnir mig hann hafi slett út einhverjum aurum til að niðurlægja Björn Bjarnason í prófkjöri. Fyrir það fóru góðir og heilbrigðir Sjálfstæðismenn að hata Jón Ásgeir einlægu hatri, en Samfylkingar gerðu hann að skúrgoði sínu, drotni og jesúkristi innan sinna vébanda.

Jóhannes Ragnarsson, 21.4.2016 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband