Leita í fréttum mbl.is

Hin mikla móðir Brýgýta sökuð um bestíuhátt af undirtyllum sínum

x9byhgg.jpgNú er sem sé komið á daginn, samkvæmt einhverjum óhörðnuðum píratablautbörnum, að móðir þeirra allra, maddama Brýgýta Jonsdottir, sé hið versta illfygli og gott ef ekki ómenni. Blessuð börnin vilja í þokkabót meina, að kringum samsuðu á framboðslistum hagi Brýgýtta sé eins og óhefluð bestía; hún stundi í þeim leik ópírtatískan undrróður, hringingar, hótanir og gípugang. Næst bera krakkaskrattarnir eflaust barsmíðar og fólskuleg rotthögg uppá þessa mæddu móður þeirra. Það er margt sem veslings blessunin hún Brýgýta þarf að þola af hendi vondra barna. 

En nú hefir Brýgýta gefið út skriflega yfirlýsingu, sem karlar eins og Sigmundur Dávíð og aðrir heimsmethafar af hans kalíberi mættu vera stoltir af. Í yfirlýsingu sinni hafnar Brýgýta öllum ásökunum vandræðaunglinganna í Píratabælinu í hennar garð. Það er einhver vofeiflegur tónn sem svífur yfir vötnum yfirlýsingarinnar, sem gefur tilefni til að gruna, að þeir sem hafa verið að væna Brýgýttu um svarragang og vonsku megi eiga von á kjafsthöggum af óblíðara taginu; ennfremur að Brýgýta bregði óróleikaungunum um að vera með alzheimersjúkdóm á byrjunarstigi, en það gafst Brýgýtu og Margréti Tryggavóttur vel gegn vandamálinu Þráni Bertelssyni í Borgarahreyfingunni og Hreyfingunni fyrir nokkrum árum. Svo gæti henni græðst þokkalega á að lýsa því yfir, að árásirnar á hana skýrist af því að hún sé kona, sona sé aldrei komið fram við kalla, það hefir Hanna Birna gert óspart uppá síðkastið og gefist vel.

Það má eflaust til sanns vegar færa, frá sjaldgæfu sjórnarhorni séð, að Brýgýta kerling sé mikil valkyrja og veigri sér ekki við að leggja höndur á flokkssystkyni sín í þeirri fullvissu, að hún ein og sjálf sé Flokkseigendafélag pírata og hafi þar af leiðandi ein leyfi til að löðrunga og dreifa rógi um þá sem vinna í prófkjörum Pírata og henni er í nöp við. Svona eiga sýslumenn að vera, og músarungarnir, sem hafa verið svo ólánssamir ganga Pírötum á vald, verða að gjöra svo vel að læra að heiðra sína miklu móður, knékjúpa henni og hlýða í hvívetna, - annars hafi þeir verra af. 


mbl.is Birgitta hafnar ásökunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Móðir Birgittu, Bergþóra Árnadóttir, söng snilld hagyrðingsins Páls J. Árdals:

Ráðið

Ef ætlar þú að svívirða saklausan mann,

þá segðu aldrei ákveðnar skammir um hann,

En láttu það svona í veðrinu vaka,

þú vitir, að hann hafi unnið til saka.

En biðji þig einhver að sanna þá sök,

þá segðu að til séu nægileg rök,

en náungans bresti þú helst viljir hylja,

það hljóti hver sannkristinn maður að skilja.

Og gakktu nú svona frá manni til manns,

uns mannorð er drepið og virðingin hans,

og hann er í lyginnar helgreipar seldur,

og hrakinn og vinalaus í ógæfu felldur.

Og þegar svo allir hann elta og smá,

með ánægju getur þú dregið þig frá,

og láttu þá helst eins og verja hann viljir,

þótt vitir hans bresti og sökina skiljir.

Eitt er alla vega alveg ljóst öllum glæpaskipulags-spillingarfræðingum, og það er að Birgitta á ekki raunverulegt sterkt fjölskyldu-bakland hérna megin móðunnar miklu. Þannig fólk er auðveld bráð fyrir dópsölu-dómaranna þjóna, sem ekki verja saklausan og bankarændan almenning, heldur verja þeir banka/fjölmiðla-mafíur.

Verði okkur öllum að góðu, með dómaraspillta vanþróun.

Þetta er Ísland í dag.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 9.9.2016 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband