Leita í fréttum mbl.is

Mál að linni

xd17.jpgÞeim ætlar seint að linna andskotans látunum í flórnum í Framsóknarfjósinu. Og fjölmiðlar elta þennan auma skítaslag eins og þeir eigi lífið að leysa og ná varla andanum af geðshræringu. Nær væri að fjölmiðlar hættu að minnast á þessar aumu fjóspöddur og sneru sér að mikilvægari málefnum. 

Það þótti meira að segja fréttnæmt, að drengfuglinn Ásmunur Einar, sem var svo róttækur kommúnisti þegar hann var í VG að hann varð að ganga Framsóknarflokkinn, tók sig til og fór að væla undan Sigmundi nokkrum Dávíð og var á honum að skilja að Sigmundur væri javfnvel verri en Steingrímur J. Álfhildur og Svavarsfjölskyldan öll til samans. Í kjölfarið verður það svo frétt, að Sigmoundur Wintris von Panama vældi undan því að Ásmundur Einar væri að ljúga uppá sig. Reyndar hefur ógæfa Framsóknar uppá síðkastið gengið útá lýgi, sem sé lygar flokksmanna í garð hvers annars og varnarræður þeirra, útataðar í lýgi, byggðar á ósannindum, til að avegaleiða umræðuna útí móa.

Það sem er ef til vill fréttnæmt er hve íslenskir kjósendur eru iðnir við að kjósa lygara ú hverjum einustu kosningum. Kjósendum er vissulega vorkun, því að fátítt er að aðrir en lygarar séu í framboði. Eftir stendur, að lygin er sigurvegari allra kosninga á Íslandi. 


mbl.is „Menn hafa haldið fram ósannindum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes. Það var nú meiri munurinn, þegar svikapilsfaldar-maddömur VG sviku bæði þingflokksmenn og kjósendur sína? Strax daginn eftri kosningar?

Og beint í herskyldu-friðarbandalagið ESB?

Já, og auðvitað er best að hafa nýja þingmenn og nógu unga, fjölskylduauðmanna-varnarlausa og óreynda, til að blekkja og kúga til hlýðni?

Til að svikabandalag VG, Framsóknar-Björns Inga, og restinni af öllu djöfladýrkandi bankadómaraliðinu hans Svavars Gestssonar og Guðna Ágústsonar gætu snúið uppá þumalfingursskrúfurnar á grunlausu ungu þingmönnunum!

Ertu stoltur af þínu svika VG-framlagi Jóhannes Ragnarsson?

Svaraðu mér bara heiðarlega hér á netsíðunni þinni! Þú ert nógu frjálslyndur í kjaftinum til að ráða við það.

Og ég þoli alveg ágætlega, lítilvirðandi og niðurlægjandi svör frá svika-VG-liðum.

Ömmi gamli gleymdi því að sumir voru ennþá lifandi og talandi, á skiljanlegu mannamáli. Hann er víst hættur að fara í svikaveiðiför í réttir í Dalasýsluna?

Ertu ekki stoltur af baklandi Vinstri Grænna Jóhannes?

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.10.2016 kl. 21:01

2 Smámynd: Kristbjörn Árnason

eg held að það væri betra að svara Önnu á bloggsíðu hennar. 

Kristbjörn Árnason, 1.10.2016 kl. 21:21

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Kristbjörn minn. Það er lokað á bloggsíðu þeirra, sem segja of mikið án mafíuflokkaverðandi ritskoðara. (Og það er lokað á mína síðu).

En þú hefur greinilega haft vit á, og stuðning til, að sleppa við slíkar lokanir?

Ja, það sitja víst ekki allir við sama tjáningar forréttinda-einkasíðuleyfis-borðið, í bloggheimunum?

Svo getið þið líka sent mér skammarbréf í bréfapósti, til að svara svona kerlingu sem ég er víst.

Heimilisfangið er Lækjargata 20 í Hafnarfirði. Og nafnið mitt stendur undir athugasemdunum mínum.

Bíð spennt eftir svarbréfum frá þeim sem eiga víst að svara svona kerlingum eins og mér, á minni eigin síðu?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.10.2016 kl. 21:38

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég ætla að svara þér á morgun, Anna Sigríður, og þá ætla ég að gera það heiðarlega og án skaldskapartilburða.

Jóhannes Ragnarsson, 2.10.2016 kl. 00:07

5 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Anna það hefur iðulega verið lokað á mig. Allt í einu var boðið að koma aftur. En ég ákvað að virða reglur en segja samt það sem mér býr í brjósti. Fyrirgefðu mér stríðnina.

Kristbjörn Árnason, 2.10.2016 kl. 00:22

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Takk fyrir Jóhannes. Það er mannbætandi að fá heiðarlega gagnrýni, og mannskemmandi að tala í hálfkveðnum vísum og dylgjum. Ég þarf á heiðarlegri gagnrýni og sannleika um málin að halda til að bæta mig.

Kristbjörn. Vonandi hefur þér ekki verið bannað að segja umbúðarlausan sannleikann, til að fá að tjá þig og hafa þína síðu? Auðvitað fyrirgef ég þér stríðnina, og vonandi fyrirgefur þú líka mína stríðni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 2.10.2016 kl. 15:26

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Anna Sigríður: Þú spyrð um hvort ég sé stoltur af mínu svika VG-framlagi. Og ennfremur hvort ég sé stoltur af baklandi Vinstri grænna.

Ég veit ekki til þess að ég staðið að einu eða neinu svikaframlagi í sambandi við VG. Ég kom að vísu að stofnum VG og var meðal fyrstu stofnfélaga, en lengri var framabraut mín ekki þar, enda stóð hugur minn ekki til neins frama í pólitík. Því miður þóttist snemma sjá ýmisleg hættumerki á vegferð þessa nýja flokks; t.d. virtust snemma vera einhverjar óskráðar reglur í VG um að almennir flokksfélagar mættu alls ekki tala sín á milli um forystu VG, hvað þá gagnrýna hana innanflokks eða opinberlega. Þetta kynduga ástand varð til þess að gamla Flokkseigendafélagið úr Alþýðubandalaginu tók öll völd og gerði hina nýju Vinstrigrænu að fjórflokksstofnun. Eitt af mörgu einkennilegu var, að ekki mátti minnast á sósíalisma innan VG og það var illa séð ef einhverjir flokksmenn töluðu um að þeir væru sósíalistar. Svo sá maður forystuna koma smám saman úr felum og feta sig í hægt en örugglega til hægri og það þurfti ekki mikla mannþekkjara eða málaflækjusérfræðinga til sjá að forysta VG með Steingrím, Álfheiði og Svavarsfjölskylduna í fremstu víglínu stefndi fyrst og fremst að því að komast í ríkisstjórn með hverjum sem vera vildi, það var meginhugsjón þessa fólks og mjög líklega eina hugsjón. Það kom síðan á daginn, þegar Steingrímur og félagar voru komir í ríkisstjórn, að þeir létu ekki hugsjónir eða annað en eigin þátttöku í ríkisstjórn flækjast fyrir sér og sviku flest sem hægt var að svíkja og flokksmenn búnir, árum og áratugum saman, að tala um.
Nei, ég er ekki stoltur af því að hafa komið að stofnun VG né af baklandinu þar. Það eru nú komin þó nokkur ár síðan ég sagði mig úr þeim félagsskap, þjakaður af vonbrigðum með þá reynslu sem ég hafði af kynnum við þann flokk og fólkið í honum.

Framhald síðar.

Kv. JR

Jóhannes Ragnarsson, 2.10.2016 kl. 18:15

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jóhannes. Þakka þér kærlega fyrir þessa hreinskilnislegu sögu.

En sagðir þú ekki einhvertíma að þú hefðir kosið VG árið 2009? Var það áður en þú áttaðir þig á hvernig var í svikapott VG búið?

Ég er víst óþolandi þrjósk og forvitin, segja sumir.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.10.2016 kl. 01:58

9 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Jú, Anna Sigríður, ég kaus VG 2009. Og ég gerði meira en það, því ég fékk leigt húsnæði uppá mitt einsdæmi og opnaði þar kosningaskrifstofu. Flokkurinn hundskaðist til að borga leiguna, en ég fékk engar þakkir fyrir frá flokksforystunni, nema Jón Bjarnason hringdi í mig og þakkaði fyrir stuðninginn. Því miður leið ekki á löngu þar til mér var augljóst, að það var heldur betur óhreint í pokahorninu hjá meirihluta þingflokksins.

Ég vissi svo sem löngu fyrir 2009 að VG var á valdi fólks, sem nánast útilokað er að treysta þegar vinstripólitík er annarsvegar, hvað þá róttæk vinstripólitík, sósíalismi. Jónas heitinn Árnason þingmaður og rithöfundur segir í æviminningum sínum um það fólk, að margt af því uni sér best við rúllettuborð kapítalismans. Þetta er hárrétt hjá Jónasi, enda þekkti hann þetta fólk og peningalegar, hégómlegar og snobbaðar hvatir þess og háborgaraleg vðhorf.

Jóhannes Ragnarsson, 7.10.2016 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband