Leita í fréttum mbl.is

Mikil líkindi með brúneggjapútunum og vissum stjórnmálaflokki

gogg3Þegar ég sá brúnhænsnin atarna, sem nú er verið að rífast um og býsnast yfir, gat ég ekki að mér gert og skellti opinberlega, ekki af því hve púturnar voru rytjulegar og þjáðar, heldur af því að þær minntu mig á einhvern dularfullan hátt á vissan stjónmálaflokk á Íslandi. Ég þykist vita, að ekki er öllum gefið, að sjá líkingu með illa hirtum hænum og gljápússuðum stjórnmálamönnum í sæmilegum holdum, en um leið og hænsnahópurinn kom uppá sjónvarpsskjáinn sá brúnstakkaða sjálfstæðismenn fyrir mér á landsfundi. Og þó að lykt fylgi ekki sjónvarpsefni er ég næsta viss um, að nákvæmlega sama pestin er í hænsnahúsinu og á landsfundum Sjálfstæðisflokksins.

x30Ekki veit ég hvort eigendur hinna hrjáðu skítabrúnu hænsnfugla eru flokksbundnir í Sjálfstæðisflokknum, en það verður þó að telja harðla líklegt. En eitt er á hreinu: Matvælastofnun og yfirdýralæknir geta ekki, eftir það sem undan er gengið, látið hjá líða að fylgjast nákvæmlega með næsta landsfund sjálfstæðismanna og beita dýraverndunarlögum og lögum um böðun búfjár frá 1903 óspart á þá samkomu og í framhaldi af því svipta Sjálfstæðisflokkinn landsfundarleyfi ef minnsti vafi leikur á farið sé að settum reglum.

gogg2Fastlega má gera ráð fyrir, að Sjálfstæðisflokkurinn geti ekki með nokkru móti uppfyllt skilyrði dýraverndunarlaga og því síður lögum um böðun búfjár frá 1903. Þar með má heita sjálfgefið, að frá og með næsta landsfundi heyri þessi alræmdi flokkur sögunni til. Það er því í hæsta máta nöturlegt, eða þó öllu heldur mest í ætt við illa orkta öfugmælavísu, að Sjálfstæðisflokkurinn hreyki sér þessa stundina, eins og hani á fjóshaug, af því að hann sé alveg við það að halda áfram í ríkisstjórn með illum göglum sér sjálfum líkum. Þessháttar skepnuskapur er náttúrlega kapítuli útaf fyrir sig.  


mbl.is Telur Brúnegg hafa blekkt neytendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta dreifir athygli frá stjórnarkreppunni.

Guðmundur Ásgeirsson, 28.11.2016 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband