Leita í fréttum mbl.is

Það verður stríð - og Kolbeini misþyrmt

kol31Fyrst þeir hafa skotið sendiherrann, og það er meira að segja sannarlega Tyrkjans verk, þá verður stríð; Rússar og Serbar ráðast á Tyrki og Þjóðverjar veita Tyrkjum liðveislu og ráðast á Rússa og Serba. Og svo fer allt í gang. Trump forseti kemst innan nokkurra daga í embætti og hjálpar bæði Rússum og Tykjum og lendir þar af leiðandi í ógurlegum bardögum við sjálfann sig og eftir nokkra daga verða allir dauðir. Það verður mikil fjölgun í Helvíti eftir áramót og fram á vor og Andskotinn fær að standa í ströngu við að koma öllum þessum nýju heimilismönnum fyrir hjá sér.

kol32Hugsið ukkur, bölvuð villidýrin ukkar, ef færeyskur lögregluþorpari mundi skjóta sendiherrann okkar þar sem hann væri að skoða sig um á færeyingasafninu í Þórshöfn. Við mundum ekki láta soleiðis kræsingum ósvarað. Stjórnin okkar mundi umsvifalaust reka öll okkar skip, þungvopnuð, þyrlur og flugvélar til Færeyja og kenna þeim labbakútum slíka og þvílíka lexíu að aunginn maður í Færeyjum mundi upp frá því þora svo mikið sem líta í áttina til Íslands. Auk þess væri soleiðis sendiherramorð góð átylla fyrir okkur að taka Færeyjar og sölsa þær undir okkur og þá væri eftirleikurinn auðveldur að taka Shetlandseyjar og Orkneyjar áður en við tækjum Írland og Danmörku. Þegar svo væri komið væri annarra þjóða kvikindum óhætt að kalla okkur Stóríslendinga og veldi okkar Stóra Ísland.

ing27Frú Ingveldur varð mjög skelkuð er henni bárust fréttir af vígi rússneska sendiherrans í Ankara. Hún hringdi undir eins í Kolbein eiginmann sinn og skipaði honum að koma sér heim á stundinni áður en einhver ódámur mundi skjóta hann eins og hvurt annað kattarræxni. Kolbeinn kom af fjöllum varðandi afdrif rússneska sendiherrans enda var hann nýkominn í kurteisisheimsókn til Máríu Borgargagns að líkna henni til rúms og sængur. En frú Ingveldur er slægvitur og gerði rannsókn á manni sínum þegar hann staulaðis heim. Hún þefaði af vel völdum stöðum á Kolbeini og spurði hann svo að því hvurt hún ætti að kalla til Indriða Handreð til að lumbra á honum, Handreðinum þætti alltaf svo vænt um að handleika lítilmenni sem væru að snuðra utaní konunni hans. Það ætti engum að koma a óvart, að frú Ingveldur lét eiga sig að hafa uppá Indriða, en sá sjálf um að misþyrma Kolbeini.


mbl.is Lögreglumaður á frívakt skotmaðurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband