Leita í fréttum mbl.is

En lætur sé nú nægja að fara að dæmi Donkíkóta

xb3.jpgHann Sigmundur Dávíð þekkir vel til endurtalninga, það er nú líkast til. Einusinni var kosið milli Sigmundar og hans Höskuldar hérna prestssonar úr Norðurlandi um það hvor þeirra ætti að vera formaður Framsóknarflokksins, þ.e. ráðsmaður í Fjósinu. Skemmst er frá að segja, að Höskuldur fékk fleiri atkvæði og var kynntur til leiks sem fornmaður Framsóknar. En í sömu andrá og Höskuldur hóf sín fagnaðarlæti yfir unnum sigri fór allt á tjá og tundur í reykfyllta herberginu bakatil og litlir framsóknarhúskarlar þurstu fram á sviðið með þann sérkennilega boðskap að þeir hefðu endurtalið atkvæðin í snarhasti og í þeirri talningu hefði Sigmundur fengið einu atkvæði umfram Höskuld og væri Sigmundur því réttkjörinn ráðmaður yfir húskörlum og griðkonum gömlu Maddömunnar í Framsóknarfjósinu.

Þessi fáheyrðu og umfram allt dularfullu meintu mistök talningarmanna Framsóknar er vafalaust merkustu mistök í sinni röð á Íslandi því ætlandi er, að umræddir teljarar hafi fyrir það fyrsta ekki kunnað að telja, verið ofurölvi við talningarborðið, eða talnablindir, lesblindir og litblindir, eða hreinlega allt þetta í senn. Auðvitað trúa fáir mistaka- og mistalningarkenningunni, sem beitt var til að hrekja Höskuld eins og halaklipptan hund niðraf sviðinu og krýna Sigmund í hans stað. ,,Þeir byrja snemma ólánsmennirnir" sögðu gömlu konurnar hér fyrr meir þegar þær fréttu af unglingsskjátum sem gert höfðu eitthvað af sér. Hið sama má segja um upphaf stjórnmálaferils Sigmundar Dávíðs, sem þjófstartaði strax á byrjunarreit. Uppfrá því hefir leið hans legið um holtabörð og lygaklungur, vörðuð villuljósum, ótímabærum upphrópunum og fáheyrðri upphafningu eigin ágætis og heimsmeta.

Don-ki-koti_151674307En nú er Sigmundur Dávíð kominn að fótum fram á sinni pólitísku framabraut, sem sést best af því, að nú lætur hann sér nægja að fara að dæmi Donkíkóta, að berjast við vindmyllur. Í tilfelli Sigmundar er hans vindmylla Ríkisútvarpið, sem hann lætur vindhögginn dynja á, til stórrar og vaxandi undrunar almúgafólks sem botnar ekki par í þessum æsta riddara úr Framsóknarfjóshaugnum.


mbl.is Minntist á endurtalningu í manni ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband