Leita í fréttum mbl.is

Frelsið er loks komið að túngarðinum okkar

drunk_1241246.jpgÞá eru þingmenn enn einusinni farnir að ræða uppáhaldsmálið sitt, brennivínsfrumvarpið, sem ekki er skrýtið, því það hæfir gáfnafari þeirra svo einstaklega vel. Nú er löngu vitað, að ungir sjálfstæðismenn, heimdellingar, og aðrir ámóta veðurvitar vilja þjóðina augafulla, ekki síst í matvöruverslunum, því eins og flestir vita þá er manneskjan aldrei jafn frjáls en þegar hún er örvita af spíritusnautn eða liggur ósjálfbjarga af sömu ástæðu á gangstétt eða í vegarkanti. Og ungu sjálfstæðismennirnir með heimdallsórana eru ekki lengur einir í baráttu sinni fyrir brennivínsorgíunni því nú eru píratar mættir til leiks, fullir af hugsjónaleldi og gufu í heila stað. Þjóðin má því eiga von á að verða loks frjáls, eins og á nítjándu öldinni, þegar frjálsir fylliraftar bönnuðu matkaupandi húsmæðrum aðgang að matvöruverslunum með drykkjulátum sínum.

ingv16_1240389.jpgEinhverjir ötulustu stuðningsmenn brennivínsfrumvarpsins frá upphafi eru þau sæmdarhjónin, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson, en þau hafa í félagi við Brynjar Vondulykt, Óla Apakött, Indriða Handreð og Máríu Borgargagn, samið hvert frumvarpið af öðru um frelsi brennivínsins og sent vankaða smástráka, heimdallsmenntaða, með þau inn í þingið þar sem fullorðnir menn hafa kastað þeim í ruslið. En nú eru breyttir tímar og inná Alþingi Íslendinga er komið fullt af hugsjónaóðum unglingum á ýmsum aldri, sem eru staðráðnir í að frelsa brennivínið í eitt skipti fyrir öll og gera þjóðina þar með frjálsa í leiðinni.

drunk1_1048452.jpgÍ dag varð svo sá merkis atburður, að frú Ingveldur og eiginmaður hennar, Vondalyktin, apakötturinn og Borgargagnshjónin, með nokkurn hóp af frjálshyggnum unglingsskjátum með sér, heimsókti veglega nýlenduvöruverslun á höfuðborgarsvæðinu, sem áður var í eigu bónusfega, og upphófu þar alfrjálsa og uppbyggjandi drykkju á brennivíni, hvítvíni og bjór. Skipti engum togum, að þegar í stað varð ljómandi frelsi alsráðandi, að matkaupandi húsmæður gátu aungva rönd við reist og gengu orðalaust frelsinu á vald. Um kaffileytið mátti sjá stútungshúsmóður koma vagandi út úr nýlenduvöruversluninni með pokaskjatta í annarri hendi, áberand fáklædda, með geirvörturnar frelsaðar sem og megnið af kviðskegginu. Þessi milda hústrú sté sigri hrósandi upp í bifreið sína og ók á brott, frelsinu fegin. Inni í nýlenduvöruversluninni mátti á sama tíma heyra orrustugnýinn af bardaga Kolbeins, Vondulyktarinnar, Apakattarins og Handreðsins við nokkra ráðvillta Pólverja sem þeim hafði tekist að króa af. Kolbeinn og hans menn staðhæfðu að Pólverjarnir mæru helvítis andskotans múlimar, sem bæri að leggja lágrétta í gólfið. En allt var svo frjálst, svo undur frjálst, í nýlenduversluninni í dag, að annað eins frelsi hefir ekki sést hér á landi síðan Gúðmúndsen kaupmaður höndlaði með brennivín og aðra spíritushlaðna vökva í stórverslun sinni, Gúðmúndsensbúð. 


mbl.is Afnám einkaleyfis en ekki aukið aðgengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband