Leita í fréttum mbl.is

Viðreisnarstjórnin og viðreisnarbastarðar nútímans

x40Einkennilegur leppalúði þessi Pawel, hann slagar hátt upp í að vera eins skrýtinn og Viðreisnar-Bensi, enda eru þeir báðir starfsmenn í útibúi Sjálfstæðisflokksins, Viðreisn. Sjálfstæðismönnum þótti gráupplagt að vísa til ríkisstjórnar auðvaldsflokkanna Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks sem var við lýði milli 1960 og 1970 og kölluð var viðreisnarstjórnin þegar þeir gáfu útibúinu sínu nafnið Viðreisn.

Sjálfstæðismenn halda nefnilega að viðreisnarstjórnin sáluga hafi verið fjarskalega góð stjórn, vinsæl stjórn og vitiborin stjórn. Samt veit enginn hvað þessi stjórn reisti við, allra síst sjálfstæðismennirnir sjálfir, hvað þá krataskiturnar sem voru helmingurinn af ,,viðreisnarstjórninni." En staðreynd sögunnar talar sínu máli. ,,Viðreisnarstjórnin atarna lá allan sinn líftíma eins og dauð marglitta og lét gríðarleg uppgrip síldaráranna á þessum áratugi halda samfélaginu gangandi. En því miður, eins og jafnan áður, gerði síldarfjandinn ,,viðreisnarstjórninni þann ekkisens óleik að hverfa af vettvangi undir lok sjöunda áratugarins og efnahagur þjóðarinna hrundi með brauki og bramli. Á fyrsta ári áttunda áratugarnins létu landsmenn það verða sitt fyrsta verka að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og krataskiturnar í Alþýðuflokknum, gegnsósa af auðvaldshyggju og undirlægjuhætti, burt úr ríkisstjórn. Það kom svo í hlut sósíalistanna í Alþýðubandalaginu að sjá um viðreisn atvinnuveganna um land allt. 

Þegar frjálshyggjuskrílnum í Sjálfstæðisflokknum, en nú til dags er nær eingöngu frjálshyggjuskríll í þeim Flokki, hugkvæmdist að efla völd sín á stjórnmálasviðinu með því að opna útibú með ,,viðreisnar" heiti, fór hrollur um alla þá sem kunna að lesa í pólitík og vita að þar sem annars staðar eru 2+2=4 en ekki 3 eða 5. Efir síðustu kosningar sátu kjósendur uppi með Sjálfstæðisflokkinn einan í ríkisstjórn og fram undan er meiri frjálshyggja, fleiri ódulbúnir fasistískir tendensar, enn meiri ójöfnuður og ranglæti. Þúsundi kjósenda, sem ekki voru áttaðir og kunna ekki samlagningargaldurinn um 2+2 í pólitík, sitja uppi með sárt ennið með þá uppgötvun í farteskinu að þeir hafi kosið Svarta-Pétur í októberkosningunum, þeir héldu nefnilega að Viðreisn og Bjarta framtíðin væru eitthvað annað en þeir eru í raun og veru. Því miður er síldin ekki á vettvangi, eins og á sjöunda áratugnum, til að steypa viðreisnarbastörðunum af stóli; í þeim efnum verðum við að treysta á okkur sjálf að þessu sinni.


mbl.is Voru menn að kaupa sér vinsældir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband