Leita í fréttum mbl.is

Búið að bera kennsl á skítakallinn og handtaka hann

voffFyrst í stað eftir af fréttin af skítakallinum við póstkassann hafði borist eins og eldur í sinu um landið fór af stað kenning um að þessi maður væri að hefna sín. Hinsvegar vissi aunginn á hvurjum hann var að hefna sín né fyrir hvað. Þar með var þessi snjalla kenning úr sögunni, - að minnsta kosti í bili. Einhverjir gátu sér þess til að hinum dularfulla náunga hafi verið orðið mikið mál, en soleiðis málflutningi var strax vísað til föðurhúsanna sem fáránlegu vitleysisbulli. Þar með voru landsmenn orðnir uppiskroppa með tilgátur og rök og voru vel komir á veg með að gleyma skítakallinum við póstkassan fyrir fullt og allt.

En þá var það að sú glögga kona Máría Borgargagn gerði sér lítið fyrir og bar kennsl á kauða. Af sínu áunna innsæi á köllum með buxurnar á hælunum sá hún í hendi sér að þarna var kominn fornvinur hennar Jón Glámur gítarleikari, frændi Óla þ. Apakattar. Nú hefir Jón Glámur verið galinn um hríð af skynvillumeðölum af ýmsu tagi og hafði einmitt tekið inn einar fimm tegundir af þessháttar sælgæti og skolað því niður með kogara þegar hann átti leið framhjá póstkassanum alræmda. Það sér hvur maður að sá sem er nýbúinn að sporðrenna fimm sortum af hressingarstöffi ásamt með brennsluspritti er mjög líklegur til að fá heiptarlega aðkenningu í innyflin.

Þegar Máría Borgargagn hafði leyst leyndardóminn um ókennda mannin, sem öll þjóðin var þá þegar farin að hata af öllu hjarta, lét hún lögregluna vita. Og Hálfdán lögregluþjónn fann Jón Glám gítarleikara innan stundar inni á vitfirringahælinu sem hann hefir búið á upp á síðkastið. Læknarnir, hjúkrunakonunar og hinir sjúklingarnir urðu steini lostin þegar lögregluþjónn í fullum skrúða, með strípur á öxlunum og í gljáfægðum leðurstígvélum, kom askvaðandi inn um útidyrnar, óð inn ganginn og inn á setustofuna þar sem Jón Glámur sat glorulegur til augnanna og drakk kaffið sitt. Enn nú meir urðu viðstaddir hissa þegar hinn aðvífandi lögregluþjónn þreif til hins ástsæla gítarleikar og misþyrmdi honum á staðnum. Og viðstaddir voru svo agndofa þegar Hálfdán lögregluþjónn dró gítarleikarann rúmlega hálfdauðann á eftir sér á annarri löppinni út að lögreglubifreiðinni og kastaði honum þar inn eins og kartöflupoka að enginn hafði mátt í sér til að depla augunum, hvað þá meir. 


mbl.is Fyrst og fremst brot á mannasiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband