Leita í fréttum mbl.is

Smá ættfræði og kyndugar konur

sera1.jpgSvo er mér sagt, að Sigríður Sunneva sé frænka frú Ingveldar, eiginlega bara náskyld henni, en ég sel það samt ekki dýrar en ég keypti. Hins vegar er eru frú Ingveldur og Ingapu all verulega skyldar og kviðmágar að auk, eða öllu heldur kviðmágkonur, margfaldar að sögn. Ingapu hefir einlægt verið hálfgerð vandræðaskepna; þekkt af lauslæti framan af en gekk í klaustur til að sporna við fýsn holdsins og var nunna í fimm ár. Því miður fór nunnustandið eins og við var búist: Hún var rekin úr klaustrinu með skömm og bölbænum.

Það varð Ingupu að falli í klaustrinu að hún laumaðist til að kenna yngstu systrunum lesbísku. Þegar yfirnunnan stóð Ingupu að verki með einni af systrunum ærðist hún gjörsamlega og var mesta mildi að hún myrti ekki Ingupu við þetta tækifæri. Þegar Ingapu snöri aftur til Íslands eftir heldur endasleppan klausturlifnað tók hún upp fyrri iðju og stofnaði til ásta út um víðan völl. Svo lennti hún eina nóttina á honum Gvöndi niðursetningi, en Gvöndur þessi er sem kunnugt er pervert. Skipti engum togum að Ingapu varð eins og sundurtætt flak eftir viðskiptin við niðursetninginn, en Gvöndur sjálfur fékk meðalharkalegt reiðarslag og var býsna þungt haldinn á gjörgæsludeildinni í hálfan mánuð.

Vinskapur þeirra frænkna, Ingupu og frú Ingveldar, er löngu farinn veg allrar veraldar, sem helgaðist af því Ingapu hélt Kolbeini, eiginmanni frú Ingveldar, í kynlífsánauð á heimili sínu í nokkra daga. Þegar frú Ingveldur hafði loks upp á manni sínum lagði hún heimili Ingupu í rúst, en Ingapu mátti bjarga sér út um glugga og leggja á flótta. Síðan hefir verið stirt milli þeirra frænkna.

 


mbl.is Fjalldalabóndi situr aftur fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband