Leita í fréttum mbl.is

Sona S-félag er ávísun að ragnarökum Íslands

foolJa hvur andskotinn, nú held ég einhverjum þyki heldur en ekki stungin tólg. Eyðibóndinn af Hrafnabjörgum, Sigmundur Dávíð, ætlar slá fjölmargar flugur í rot með því að stofna til samfarafélags! Og ekki nóg með það, þetta verður Samfarafélag með stórum staf, - sem merkir hvað? Ja, ég veit það eiginlega ekki; sennilega félag, sem samkvæmt orðanna hljóðan, leggur stund á samfarir, og geyspar væntanlega golunni fyrr en varir úr reiðarslagi. 

Nú, það hefir sosum áður gerst að einhverjir grallarar í Framsóknarfjósinu hafa skotist undan pilsfaldi gömlu Maddömunnar og stofnað félög, nægir þar að nefna vinsæl félög undir ýmiskonar nöfnum sem dáindispiltarnir Finnur, Óli Miðhraunsbóndi og Sigurður Einarson hafa sett á laggirnar við einstakan oðrstír. En aungann framsóknarmann kunna menn deili á, hvorki fyrr né síðar, sem hefir haldin slíkri andagift að honum hafi hugkvæmst að stofna Samfarafélag með heimíli og varnarþing að Hraafnabjörgum austrá landi. Og gamla Framsóknarmaddaman kumrar af losta í kör sinn eftir að vera borin á börum á stofnfundinn. Og litla gula jómfrúinm don Alfredos, skríkir af kátínu yfir vösku framtaki Sigmundar Dávíðs.

Hinsvegar er Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður lítt hrifinn af uppátæki hins fallna formanns því hann hræðist að missa bæði frú Ingveldi og Máríu Borgargagn yfrí samfarafélagsskapinn atarna. Hann veit sem er, að umræddar sæmdarkonur kunna að vera veikar á svellinu, enda mikið fyrir fuglinn og merlyndar með afbrigðum. Honum óar líka við að eiga mannskap á borð við Brynjar Vondulykt, Óla Apakött og Indriða Handreð eina fyrir sálufélaga þá samkvæmi skal haldið með gullnum veigum og hvítu dufti. - Þeir eru soleiðis menn, segir Kolbeinn, - sem víla ekki fyrir sér að hafa um hönd mjög ósiðlega tilburði, sem aunginn kann lag á nema frú Ingveldur og Borgagnið, sem eru þó út af fyrir sig eins og þær eru og til alls vísar þegar sá gállinn er á þeim.

Verst væri þó, að mati Kolbeins, ef fyrirhugað samfarafélag verður svo fjörugt að það stökkbreyttist í stjórnmálaflokk, því að þessháttar stjórnmálaflokkur fengi vísast mikið fylgi, mikið og margfalt meira en Viðreisn í síðustu kosningum. Ef þessi déskotans samfarfélagshugmynd tæki upp á að gerast samfaraflokkur, til dæmis á Norður-Kóreanska vísu, þá myndi það á örskotsbragði ríða íslensku þjóðinni og Íslandi yfir leitt að fullu, sem sé í hel, og þá væri bara allt búið.  


mbl.is Sigmundur boðar stofnun nýs félags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband