Leita í fréttum mbl.is

Miðaldra mannskjátur eru óbilgjörn villidýr og illa innrætt

ingv9_1241807.jpgJá, þykir veslings kerlingarskrukkunni sona líka frábært að vera miðaldra. Ég trúi að þetta sé eitthvað orðum aukið hjá henni, því staðreyndin er miðaldra fólk þjáist í köldum flogaköstum sökum gráa fiðringnum hefir heltekið það og sumir hreinlega drepast af þessum hvimleiða kvilla. Eitt uppáfallandi tilfelli fraus í hel fyrir neðan gluggann hjá unglingsskjátu sem ekkert vildi með hina miðaldra skepnu hafa. Annað tilfelli, kvenkyns, hefði líklega nauðgað Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra og framsóknarmanni, jafnvel til dauðs, ef eiginkona hans, frú Ingveldur hefði ekki tekið í taumana og handfjatlað það utanaðkomandi, gráfiðraða villidýr dálítið og sveiflað því að svo búnu á hárinu lengst út á götu á. En nú er frú Ingveldur sjálf orðin miðaldra og vel það og sýnir óspart hina frábæru miðaldra hlið sína, grjótharða,óbilgjarna og kynjaða.

Þegar þær frú Ingveldur og Máría Borgargagn urðu miðaldra, gerðist það er oftast vill verða þegar kvenfólk nær þeim aldri, að þeim hvarf hið fínlega kveneðli en við tók óeðli sem líktist mest innræti ruddalegs sjóara á fylliríi. Þær tóku að ganga um götur og knæpur frísandi eins og stórtenntar merar í hestalátum og frú Ingveldur beit og sló ef hún fékk ekki vilja sínum framgengt þegar í stað. Um þær mundir, þá miðaldurinn gekk henni í garð, boðaði frú Ingveldur til fræðslufundar í sjálfstæðisflokkskvenfélaginu Gullvangninum og félgaskonur vóru með á nótunum og tóku vel við sér og steðjuðu til fundar við frú Ingveldi. Þegar salurinn var orðinn fullur af sjálfstæðiskonum og andyrið líka, setti frú Ingveldur á slíkan fyrirlestur að ósvikinn hrollur fer um þær sjáfstæðiskvinnur sem viðstaddar voru enn þann dag í dag. Þetta var reiðilestur með hótununum, brigsyrðum og blóti so hjartaskerandi að konur þær er næst sátu ræðustólnum gerðust so undurhræddar að þær skitu í buxurnar. Síðan hafa þær verið aðhlátursefni á hinum myndarlegu helgarsamkomum að heimili frú Ingveldar og Kolbeins, en þar eru sem kunnugt er gamanmál reifuð og haft í skemmtilegum flimtingum.

Margar þeirra kvenna sem sátu undir eldmessu frú Ingveldar fengu áfall og lögðust í drykkjuskap og voru upp frá því ölóðar á tyllidögum og við opinberar athafnir. Sona hefir nú miðöldrunin og grái fiðringurinn farið frábærlega með heiðvirðar sjálfstæðisflokkskonur sem sókt hafa fundi frú Ingveldar eftir að hún varð sjálf miðaldra. Um miðaldra kallófreskjur er víst best að hafa sem fæst orð því flest sem soleiðis mannaumingjar taka sér fyrir hendur er öðru fólki undantekningarlaust til ama og stórskaða. Enda ku fangelsin full af þessum ófétum, sem og vitfirringahælin. Nú hafa sumir stjórnmálaflokkarnir tekin upp þann sið að úthýsa miðaldra karlmönnum úr viðkomandi flokkum, því að þessar skepnur geta hvorki lært né skilið fémínísma og eru auk þess leiðinlegir, ljótir og kynóðir öfuguggar og gjörsamlega óhæfir á framboðslista til almennra kosninga.


mbl.is Frábært að vera miðaldra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband