Leita í fréttum mbl.is

Og andi hins ástsæla húskarls, sem Maddaman hefir velþóknun á, svífur yfir vötnum

femma4Enn heldur það áfram að leiða og leiða. Nú er það hinn ástsæli húskarl gömlu Framsóknarmaddömunnar, sjálfur Don Alfredó, sem leiðir allt klabbið í Reykjavík fyrir hönd Maddömunnar og svífur þar yfir öllum vötnum eins og heilagur andi úr texta frá rammkatólskri tíð. Auðvitað skipaði Don Alfredó sína eigin dóttur í efsta sæti annars listans en alókunnan værðarlögmann í það fyrsta á hinum. Á eftir leiðurunum koma svo hvítvoðungar, spurningastúlkur og örvasa gamalmenni, öll saman úr blessuðum Fjóshaugnum sem hinn misheppnaði ráðsmaður, Sigmundur Dávíð, hélt sig öllum stundum þegar hann átti að vera í vinnunni.

Þetta eru auðvitað ákaflega sigurstranglegir listar, án flugvallarvina og andmúslimskra lýðskrumra. Þó læðist að sá grunur, að á listunum sé í bland fullmikið af undirmálsnúmerum sem aldrei hafa heyrt á Framsóknarflokkinn minnst áður en þau fengu boðskort um listapartý frá Don Alfredó. Sjálfri er gömlu Framsóknarmaddömunni andskotans sama um hvaða kríli skipa lista hennar í Reykjavík því að hún er hálf utan við sig í höfðinum síðan ódámurinn Sigmundur Dávíð sýndi henni banatilræðið um daginn. Og henni líður á þessari stundu eins og hún hafi alið hryðjuverkanöðru við brjóst sér.

Svo er auðvitað óvíst enn sem komið er hvort reykjavíkurlistar Don Alfredós og gömlu Maddömunnar fái fleiri atkvæði en sem svarar fjölda þeirra skipa listana, en í augnablikinu er það fremur ólíklegt. Og nú þýðir ekkert að baula eins og stagkálfur í flórnum Framsóknarfjóssins fyrst pöddurnar eru flúnar af vettvangi í aðra vist, kýrnar flestar dauðar, húskarlar og griðkonur meira og minna farlama og gamla Framsóknarmaddaman sjálf lögst banaleguna, farin að berja nestið eins og kallað er. Það mun jafnvel ekki duga nokkurn skapaðann hlut fyrir litlu ungfrú Alfredos að þenja nasavængina að æfa bros og takta Katrínar Jakobsdóttur fram á kjördag. En allt mun koma fyrir ekki; enginn mun falla fyrir þessháttar brettugangi og fírumfári.


mbl.is Lilja og Lárus leiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband