Leita í fréttum mbl.is

Rómuđ afturganga úr svörtuloftum skemmtir bíógestum

cap1Ekki kannast ég viđ ađ Seđlabankinn hafi nokkru sinni veriđ heimilisvinur á mínu heimili og á ekki von á ađ hann banki upp á hjá mér héđan af. Og ţó svo ađ Seđlabankinn drćpi á dyr hjá mér og beiddist inngöngu mundi ég alls ekki hleypa honum inn, ţví ég kćri mig ekki um skríl í mínu húsi. Hitt er ekki síđur einkennilegt ađ Már nokkur Guđmundsson sé orđinn skemmtikraftur í Háskólabíói, ţví satt best ađ segja er ţeim manni flest betur gefiđ en ađ vera skemmtilegur; sumir segja hann meira ađ segja svo andskoti ţrautleiđinlegan ađ til fullkominnar hörmungar megi telja. Stađreyndin er samt sú, ađ Már Guđmundsson sló rćkilega í gegn í Háskólabíói í dag ađ áheyrendur veltust um af hlátri, sumir fengu krampa og dóu hreinlega, ađra, sem ekki gátu hćtt ađ hlćgja, var hćgt ađ sprauta niđur.

Í eina tíđ ţóktist Már seđlabankastjóri og grínari vera ógurlega róttćkur, var í Fylkingunni og og redoblađi hvurn mann í marxisma og ofurróttćkni allt ţangađ til ađ hann dó skyndilega inn í svörtuloft Seđlabankans viđ Arnarhól; ţetta var ekki hćgfara andlát, heldur hrein bráđkvedda. og róttćknin, hún liđađist í burtu eins og dulítill gufuhnođri og hvarf á augabragđi. Upp úr ţví fór Már ađ ganga aftur, sást gjarnan í för međ Indriđa Handređi og Máríu Borgargagni á leiđ í helgarsamkvćmi hjá frú Ingveldi og Kolbeini. Og frú Ingveldi og ţeim hinum ţókti undurgott ađ fá uppvakning úr svörtuloftum í samkvćmi ţví ađ vomurinn hélt innblásnar rćđur um dýrđ kapítalismans og hina ósýnilegu hönd markađrisn.

Svo varđ allt hljótt um hríđ og Már karlinn virtist horfinn eins og péníngahverlfingarnar í Seđlabankanum hefđu gleyp ţennan draug sinn og kveđiđ hann niđur. En ţá bárust fréttir, eins og skrattinn úr sauđarleggnum, ţess efnis ađ Már afturganga úr svörtuloftum hefđi tekiđ sér far á fyrsta farrými til útlanda til ađ gérast kórdjákni viđ eitthvert mammonsmusteri í Evrópu. Ţađ ţókti borgarastétt vinstriflokkanna mikil upphefđ. Svo gerđist ţađ einn daginn, ađ Már kórdjákni í Evrópu var skyndilega kallađur heim, ţví allt mammonskerfiđ á Íslandi var komiđ í hönk, og ţađ vantađi seđlabankastjóra. Ţannig andađist hinn fyrrum ofurmarxisti og vinstrimađuri aftur inn í svörtuloft seđlabankans og eins og fyrri daginn gekk hann umsvifalaust aftur í annađ sinn. Ţađ má mikiđ vera ef ţađ er ekki einsdćmi ađ tvíafturgenginn mammonsţjónn skuli birtast fjölda manns sem skemmtikraftur og brandarakall í stóru bíóhúsi. Ađ vísu var Hjaltastađarfjandinn frábćrlega skemmtileg afturganga, en hann homst aldrei á sviđ í Háskólabíói en varđ ađ láta sér nćgja ađ skemmta búandkörlum og kerlingum, já og einum sýslumanni og einum presti, á sveitabć austur á landi um hávetur.      


mbl.is Seđlabankinn „besti vinur heimilanna“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guđmundur Ásgeirsson

Hann má eiga ţađ ađ hafa mćtt og ađ minnsta kosti haft hugrekki og heiđarleika til ţess.

Hvađi manni svo finnst um kynninguna og efni hennar kann ađ vera annađ mál. Persónulega fannst mér athyglisverđust ţau ummćli hans ađ ţađ skipti ađ sínu mati engu máli fyrir seđlabankann ţó verđtrygging yrđi afnumin.

Enda er ţađ alfariđ á fćri Alţingis ađ ákveđa ţetta.

Guđmundur Ásgeirsson, 8.10.2017 kl. 02:51

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband