Leita í fréttum mbl.is

Hamingja, endajaxlasýning og engladans

berr4.jpgÞetta líkar mér. Nú er Katrín farin að brosa svo ofboðslega, að endajaxlarnir sjást greinilega og andlitið bókstaflega sundurgliðnað af hamingju og ofsakæti, svo sem myndin af henni með frétt mbl.is sýnir og sannar. Og ástæðan er augljós: Hún er farin sjá fram á, að með snöfurmannlegum stjórnmálaastörfum sínum er henni alveg að takast að framlegna líf Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn og reisa Framsókn upp frá dauða og djöfli. Það er ekki nema von, að telpan sé brosmild yfir slíku afeki og þá ekki síður að verða aðili ríkisstjórn Hrunflokkana og tryggja í leiðinni viðunandi stól undir loddarabotninn á Steingrími, Sendiherradótturinni og sjálfri sér. Nú er loks ljóst erindi VG í pólitík og endajaxlasýningin mun halda blessunarlega áfram um sinn.

Það vekur líka athygli, að Katrín er farin að vera drjúg með sig í tali eins og karllægur og montinn kotbóndahnubbur sem farinn er að auðgast af sauðaþjófnaði. Og þó að lítið hafi birst upp á síðkastið af myndum af Steingrími sjálfum, en mér er sagt, að karlinn hafi útvíkkað hið kunnuglega yfirlætisglott sitt til muna og sér vart þekkjanlegur lengur. Þá hefir hið háborgaralega fyrimannsglott Svavars Sendiherra síkkað verulega upp á síðkastið, það er meira að segja orðið svo sítt, að hann er farinn að minna á vélskóflu með skófluna niðri og tilbúna til að moka yfir þá arfleifð, sem þetta fólk hefur talið sig eiga. Það er ekki nema gott eitt að segja um það að þetta fólk sé loks að komast heim til sín eftir langa og stranga eyðimerkurgöngu á vegi blekkinga og loddaratilburða.

Nú bregður líka svo við, að sæmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður hafa fallist í faðma og eru fullkomlega hamingjusöm. Fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins hefir frú Ingveldur upphugsað og hannað leikfléttuna, sem nú er búið að leiða VG í, og Kolbeinn hefir lóðsað gömlu Framsóknarmaddömuna, staurblinda og karlæga, inn í örugga höfn í Valhöll. Enda dönsuðu flokkseigendur Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG engladans í alla nótt í stofunni hjá sæmdarhjónunum. Það var víst falleg sjón að sjá. Nú hrýtur það úr sér vímuna, liggjandi þvers og kruss, á áminnstu stofugólfi, en sigurvíman vegna sameiningar þessara þriggja flokka mun halda áfram þar til hylla fer undir næsta Hrun, sem verður fremur siðferðilegt en bánkalegt. 


mbl.is Katrín: Línur við það að skýrast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband