Leita í fréttum mbl.is

Fagráðherra eða þvagráðherra, það er spurningin ...

pissHvað í heitasta helvíti ætli fagráðherra sé? Það er máske eitthvað skylt fagfjárfesti, sem er sona voða fínt nafn á bröskurum. Eftir vill merkir þetta ,,fag" í fagráðherra sama og námsgrein, sem stundum er kallað fag og fagráðherra þýði þá einhverskonar herra í ótiltekinni námsgrein. En ef einhverjir eru að velta fyrir sér hvort Gvöndur Mýramaður sé poletiskur ráðaherra eða fagráðherra, þá er því auðsvarað að hann er hvorugt; hans nærvera í ríkisstjórn helgast af því að hann er dæmigert undarennudekurdýr úr rassvösum Steingrím og Svavars, svona gluggaskraut eins og Katrín nokkur Jakk. 

Þegar Brynjar Vondalykt heyrði í fyrsta sinn rætt um fagráðherra misskildi hann orðið og hélt að verið væri að tala um þvagráðherra, sem í reynd er svo sem ekki ósvipað fyrirbæri. Lengi vel velti hann fyrir sér hvaða hlutverki þvagráðherra þjónaði; hvort þetta væri þvagrannsóknarmaður, sem gengi milli manna og léti þá míga í flösku og kannaði síðan undir smásjá hvort þeir væru haldin einhverjum næmum sjúkdómi. Svo fylltist Brynjar Vondalykt óstöðvandi löngun til að hitta þvagráðherrann og fá að pissa í flöskuna hjá honum. Og kveld eitt, þegar Brynjar var að slangra pöddufullur í námunda við Alþingishúsið, kom hann auga á mann með flösku, vel klæddan og fyrirmannlegan. - Þetta hlýtur að vera þvagráðherrann, hugsaði Vondalyktin, og steðjaði þegar til hans.

- Gott kveld, sagði Brynjar Vondalykt og reyndi af fremsta megni að stramma sig af. - Vildu þér ljá mér flöskuna, ég ætla gefa sýni. Svo teygði hann sig efir föskunni og tók hana úr hendi mannsins og hófst þegar handa við að skila þvagsýni í hana. Hinsvegar varð eigandi flöskunnar fyrir sína parta ekki neitt sérlega ánægður með Vondulyktina þegar hann áttaði sig á hvað þessi aðvífandi mannfjandi var að gera í flöskuna. Þessvegna greip hann í arm Brynjars og ætlaði að svipta honum til, en fékk fyrir bragðið bununa úr þvagblöðru þvagsýnisgjafanns beint framan í sig og yfrm sig allan. Síðar um kvöldið hirtu tveir lögregluþjónar Brynjar Vondalykt rotaðann upp af stéttinni framan við Alþingishúið og mismunaði honum í því ástandi inn í fangaklefann.   


mbl.is Pólitískur ráðherra, ekki fagráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband