Leita í fréttum mbl.is

Hvort kallaði hann hana fíl eða fýl?

ch4Það er meiri fjandans dóninn þessi Jón Þór. Hann kallar frú Andersen fíl, eða jafnvel fýl. Hverskonar annars orðbraggð er þetta á manninum? Það veitti ekki af að fara með grænsápu og flöskubusta uppi svo orðháka, það gerðu komlu konurnar við götustrákana sína þegar þeir fóru yfir strikið í munnsöfnuði og tiltektum. Maður á bara ekki eitt einasta orð. Og hvað ætli Jón Þór viti hvort Steingrímur er íhaldsmaður eða ekki? Veit yfirleitt nokkur maður hvað þessi Steingrímur er? Ja, jú, við vitum svo sem vað hann er ekki; hann er til dæmis ekki vinstrimaður, allra síst sósíalisti. Svo segir Jón Þór að Steingrímur sé gamall kommúnisti. Hvaðan ætli gamli malbikarinn hafi þann fróðleik? Það hlýtur einhver að hafa logið þessu að manninum og hann trúgjarn og einfaldur. Nei, Steingrímur er hvorki gamall né nýr kommúnisti, eða eitthvað þar á milli. En - jú, Steingrímur er kvótasinni og stórvinur og samherji sægreifa, það ætti að geta gefið vísbendingu um hvað hann er.

Annars er þetta alvarlegt mál með hann Jón Þór. Ekki veit hann hvort hann á að vera á þingi eða ekki á þingi. Hann veit ekki heldur hvort hann á að leggja malbik eða láta það eiga sig. Hann ætti að hafa það eins og hann Sigmundur okkar hérna Dávíð, að vera þingmaður en láta samt aldrei sjá sig á þingi. Helvíti knár strákur hann Sigmundur Dávíð, það má hann eiga, en ansans ári tortólskur þegar á reynir. En hvaða skoðun ætli Jón Þór hafi á rakarafrumvarpinu? Það hefir enn ekki verið útkljáð svo vitað sé. Eða frumvarpinu um eyðingu búfjár?

kol29Það fór ekki milli mála að frú Ingveldur reiddist ákaflega orðum Jóns Þórs um frú Andresen, en frú Andersen er uppáhaldsráðherra frú Ingveldar. Hún var komin á fremsta hlunn með að hlaupa niður á alþingi með grænsápuna og salerniskústinn í bakpokanum og skrúbba hroðann úr munninum á Jóni Þóri, alveg niður í kok. En því miður varð hún fyrir því ónæði, þegar hún var rétt búin að troða grænsápubrúsanum í pokann, að Kolbeinn eiginmaður hennar velltist augafullur inn úr dyrunum, að bana kominn sökum skelfingar, með gamla Kolbein albrjálaðan á hælunum. Kolbeinn hafði víst farið í heimsókn til föður síns á dvalarheimilið Garðás, sem sá gamli kallar ævinlega Hlandás. Þar hafði Kobeinn yngri farið að hafa sér ósæmilega við starfstúlkurnar og það í miðri mítú-byltingunni. En gamla Kolbeini var svo sem fjandans sama um það, en þegar hann kom að syninum þar sem hann var að stela áfengi úr einkavínskáp hans, reiddi gamli maðurinn járnstafinn sinn á loft og hugðist mölva hausinn á honum í klessu. Það varð Kolbeini yngri til happs, að hann stökk beint af augum út um herbergisgluggann, sem er á annarri hæð, og lenda í trjárunna, ssem tók af honum mesta fallið. Og Kolbeinn beið heldur ekki boðanna, reif sig út úr runnanum og tók til fótanna, því nú var um sjálft lífið að tefla. Sem betur fer var Kolbeinn enn með flöskurnar tvær, sem hann hafði stolið frá föður sínum, í beltinu, óbrotnar og þar af leiðandi til mikils að vinna að komast með þær lifandi á öruggan stað. En því miður var gamli Kolbeinn fótfrár líka og veitti Kolbeini syni sínum eftirför, sem lauk með því að sá yngri steyptist inn úr dyrunum heima hjá sér, þar sem frú Ingveldur gjörði hið stolna vín upptækt og gamli djöfullinn náði honum og barði hann sundur og saman með járnstafnum þar til Kolbeinn Kolbeinsson yngri féll í ómeginn. Þá hætti gamli maðurinn barsmíðunum og fór með tengdadóttur sinni og báðum stolnu brennivínsflöskunum inn í miðstöðvarkompuna og læstu að sér.      



mbl.is Steingrímur er íhaldsmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband