Leita í fréttum mbl.is

Dagur og sá litli ljóti í vanda, en munu reyna dörtí trix til að redda sér

ingv14.jpgÆ, ætlar nú Samfylkingin að fara að standa í framboðsstússi einu sinni enn. Hvað á sona helvítis fíflagangur að þýða? Ég og fleiri vorum að gera okkur vonir um, að þeir sem haldið hafa Samfylkingunni úti væru búnir að koma auga á hversu skelfilega tilgangslaust það er að halda halda þessu vemmilega flokksóféti að fólki. En nei, bölvuð hænsnin ætla að reyna eins ferðina enn, þó svo að í hverri ferð verði flokkstuskan til háborinnar skammar og krataeðlið æ ómerkilegra í hugum hugsandi einstaklinga.

Og hvaða frambjóðendur þykist krataþýið hafa til að keppa um sæti á framboðslistum? Jú, væntanlega gefa Dagur og litli ljóti skuggabaldurinn kost á sér, en varla fleiri. Sennilega verður Samfylkingin að fá lánaða frambjóðendur frá flugvallavinum, sem ekki eiga í hús að venda eftir að gamla Framsóknarmaddaman kastaði þeim út. Já, og Gwöðfenna og Sveinbjörg eru aldeilis alveg fullgóðar á lista með Degi og þeim ljóta. Verst er þó að læknavísindunum hefir ekki enn tekist að finna upp nægilega gott sprautumeðal við kratavírusnum. Gottfreð læknir reyndi sína eigin efnablöndu á nokkra krata, sem komu á stofuna til hans. Það var ágæt blanda og virkaði býsna vel; en því miður dóu allir kratarnir sem tilraunin var gerð á tveimur og þremur dögum eftir að hafa fengið sprautuna. Hinsvegar virkaði efnið hans Gottfreðs talsvert betur á fólk með krónískan framsóknarvírus: Tíu prósent fengu bót meina sinna en afgangurinn varð geggjaður og er geymdur í búrum inni á Kleppi.

Nú síðast er kominn upp þungur rymtur þess efnis, að það sé Samfylkingin sem standi fyrir þeim hinum óútskýrðu mannahægðum á gangbrautum og í undirgöngum í Grafarvogi. Leikurinn er að sögn gerður til þess, að þegar Grafarvogsbúar verða farir að bera sig nógu aumlega undan skítastandinu, þá komi Dagur sjálfur og sá litli ljóti í eigin persónu um miðjan dag, með herskara af fréttamönnum og myndavélum á eftir sér, og hreinsi upp hægðirnar og sýni þar með borgarbúum í eitt skipti fyrir öll, að ef þeir nái ekki kjöri í borgarstjórn í vor þá muni Sjálfstæðisflokkurinn fylla borgina af hægðum og rottum so að hvurgi verði þverfótað um innan borgarmarkanna. 

Meðfylgjandi mynd er af samfylkingarstúlku við iðju sína í Grafarvogi.


mbl.is Samfylkingin með flokksval í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Já, satt segirðu, ég trúi líka frekar að sósíalistarnir, sem mynda meirihlutann í borgarstjórn hafi staðið þarna að verki frekar en Sjálfstæðismenn.

En frá því að sósíalistarnir tóku við borgarstjórastólnum fyrir 8 árum og allar götur síðan þá hefur Reykjavík verið þakin sorpi, og undirgöng eru aldrei þrifin, ekki einu sinni sópað nema kannski á tyllidögum.

Þegar ég var ungur voru götusóparar og sóparabílstjórar alltaf á ferðinni, nú sést þetta ekki lengur, þessar þörfu stéttir og farartæki hafa sósíalistarnir í borginni sparað burt.

- Pétur D.

Aztec, 15.1.2018 kl. 19:06

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú segir nokkuð. En það eru ekki neinir sósíalistar í meirihlutanum í Reykjavík, ekki frekar en í minnihlutanum. Að því slepptu, eru litli ljóti kallinn og Dagur kanski valdir að hægðunum í undirgöngunum. Hver veit.

Jóhannes Ragnarsson, 15.1.2018 kl. 19:52

3 Smámynd: Aztec

Á meginlandi Evrópu, svosem í Frakklandi og allri Suður-Evrópu eru kratar, kratalingar og vinstrigrænir kallaðir sósíalistar og þaðan af verra. Í Bretlandi samanstendur Verkamannaflokkurinn af sósíalistum. Stundum eru mörkin milli liberals og sósíalista mjög óskýr. Það er kaldhæðni að flokkarnir í fyrrverandi kommínistaríkjum í A-Evrópu skuli vera þeir einu með manndóm í sér ólíkt sósíalistunum á Vesturlöndum.

Aztec, 16.1.2018 kl. 02:11

4 Smámynd: Aztec

Fyrst þú segir að Dagur & Co. séu valdir að þessum óþrifnaði í Grafarvoginum, þá er það eflaust líka þeim að kenna að það séu saurgerlar (skítabakteríur) í neyzluvatninu. Og í bezta 1984-stíl (War is Peace, Hate is Love), þá kalla þeir það eitthvað annað en það er. Þeir kalla það "jarðvegsgerlar" til að fólk fari ekki að halda (fái ekki að vita) að þetta eru ekkert annað en skítabakteríur sem hefur verið hleypt úr klóakinu í drykkjarvatnið okkar og ísmolana. Alveg eins og þegar þessi sósíalíski meirihluti notar orðin "þétting byggðar" í staðinn fyrir "útrýming grænna svæða". Hyski.

Aztec, 16.1.2018 kl. 15:45

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er naumast hugur í þér kallinn. En eftir stendur spurningin hvort það hafi verið meirihlutinn eða minnihlutinn í borgarstjórn sem kukkaði í neysuvatn höfuðborgarbúa. Áður og fyrr vóru þeir sem gerðu soleiðis í brunna manna kallaðir brunnmígar. Og hverjir ætli séu meiri brunnmígar meirhlutinn eða minnihlutinn. Ég man glögglega þegar sjálfstæðisflokksmenn kukkuðu sem mest í gangverk efnahagslífsins og bankarnir ultu á hliðina og drápust af ofneyslu á péníngalegum skítabaktéríum.

Jóhannes Ragnarsson, 16.1.2018 kl. 16:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband