Leita í fréttum mbl.is

Hverslags skepnur eru það ...

flokkseigendur_786424Hverslags skepnur eru það að upplagi sem hafa geð og nennu í sér til að rífa sig upp fyrir allar aldir á laugardagsmorgni til að sitja fund með íhaldshækjunum í VG? Það hlýtur að útheimta afar sljóar sálargáfur, að fá ekki séð hve hlægilegt er að horfa á hokur flokkseigenda VG hjáleigukotinu í túnjaðri Höfuðbólsins, Sjálfstæðisflokkins, helstu uppsprettu ójafnaðar, yfirgangs og ómennsku í samfélaginu. Og dettur virkilega einhverjum í hug að taka flokksræxni á borð við VG, sem upphaflega var stofnaður til að verða flokkur vinstrisósíalista, alvarlega eftir að í ljós kom, að æðsta markmið þeirra sem eiga þennan umskiptingaflokk var allan tímann að komast í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum, þessu siðspillta og glæpsamlega höfuðvígi auðvaldsins á Íslandi? Nei, það eru aðeins fífl sem taka ógeð eins og VG alvarlega og enn meiri fífl sem rífa sig upp á laugardagsmorgnum til að mæta á fundi hjá þessu skrímslasamkvæmi.

Í tvígang hefi ég nýlega heyrt útvarpsmenn segja við Katrínu Jakobsdóttur í viðtalsþáttum að VG væri sósíalískur flokkur án þess að Katrín hreyfði nokkrum andmælum við þessum öfugmælum. Ef Katrín hefur með þögn sinn verið að samþykkjað að VG væri sósíalistaflokkur er hún ákaflega óheiðarlegur stjórnmálamaður, ef hægt er að nota orðið stjórnmálamaður yfir hana almennt, eða hún er fattlaus og sálarsljó með afbrigðum. Ég hallast frekar að því að þessi ,,formaður" og gluggaskraut Steingríms, Álfheiðar og Svavarsfjölskyldunnar, sé óheiðarlegur póltíkus, mjög óheiðarlegur, enda uppalin í handarkrikanum á Steingrími J. Sigfússyni, sem þekktastur er fyrir að vera einhver mesti pólitískur óheilindamaður sem uppi hefir verið á þessari öld og hinni síðustu. 

xv2.jpgÞað verður mikill dagur í sögu íslenskrar þjóðar þegar og ef henni tekst að losa sig við þá pólitísku óöld og ruglandi, sem geysað hefir alla þessa öld, með handónýta þingmenn, gjörspillta lukkuriddara, loddara og andlega uppskafninga. Það er engu líkara en orðið hafi einhverkonar ketilsprengin í pósthólfi 101 Reykjavík, sem þyrlað hafi trénuðum kaffihúsaspekingum og heilþvegnum peningagéðsjúklingum út um öll foldarból. Og í sameiningu hafi þessum óþjóðalýð tekist að eyðileggja íslenskt samfélag; það er nánast enginn hlutur samfélagsins í lagi eftir helreið þessara sjálfhverfu og sjálfumglöðu vesalinga. Það verður verk að vinna á Íslandi þegar úrkynjunar- og undanrennuvíman rennur af þjóðinni og stjórnmálum hennar og farið verður að vinda ofan af hroðanum, sem haldið hefir samfélaginu í helgreipum frjálshyggjuóra og ofsagræðgi, en það gerist ekki meðan flokksafmán sem kallast ,,Vinstrihreyfing" telur það verkefni sitt að vera hækja Sjálfstæðisflokksins og hjáleiguhokrari á hjáleigukoti auðvaldsins.    

 


mbl.is Nógu margir sem tala um aðgreiningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband