Leita í fréttum mbl.is

Af ætt konferensráðs eins og Runólfur Jónsson

Björn í BrekkukotiÞað væri fróðlegt að vita hver það er sem beðið hefir hr. Ó. Stephensen að leggja orð í belg um samræðishóp búvörusamninga. Og ,,Félag atvinnurekenda", hvur fjárinn er nú það? Já, og af hvurju getur þessi Ó. Stephensen skrifað sig son eins og venjulegt fólk? Nei, drengir mínir, vér erum nú þegar búnir að fá oss fullsadda af stekkjastaurum og skegghöfrum, sem gala og mala eins og þeir séu yfir allan almenning hafnir sökum yfirburða gáfnafars og góðra ætta; mættum vér af þessu tilefni minna á að Runólfur nokkur Jónsson, frægur afturúrsiglari, til heimilis að Brekkukoti snemmindis á síðustu öld, var líka af ætt eihvers ágætasta konferensráðs er hér hefir fæðst og borið beinin.

Þá væri ekki síður gott að vita hvesvegna í ósköpunumm þessum Ó. Stephensen dettur í hug að einhver ráðherra svari honum; vill maðurinn ekki góðfúslega kanna hvort hann sé yfirleitt svaraverður? Allrasíst er í verkahring ráðherra að eiga orðastað við annan eins freklegan órabelg af ætt konferensráðs og framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Það er aunginn venjulegur smá-ábyrgðarhluti að eiga í samtölum nú til dag, og einungis til þess bærir aðiljar eiga rétt á soleiðis samtölum við þjóðkjörna alþingismenn og ráðherra. Það er ekki nokkur leið að sjá að framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda eigi rétt á slíkum traktéringum.

x28Í hitteðfyrra, þegar samkvæmi að heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar stóð sem hæst, sáu forviða vegfarendur allt í einu hvar framkvæmdastjóri nokkur úr atvinnurekendageiranum kom sveifandi eins og páfagaukur út um eldhúsgluggann á því heimili. Þennan ólánssama framkvæmdastjóra hafði hent sú villa, að fara með klærnar helst til hátt uppundir pils húsmóðurinnar og bar úr býtum fyrrgreinda flugferð og harkaleg meiðsl. Þess vegna er nú ástæða til að minna hinn unga framkvæmdastjóra Félags atvinnurekanda að ganga hægt um gleðinnar dyr að heimili frú Ingveldar og Kolbeins er hann þyggur heimboð þeirra sæmdarhjóna um næstu helgi


mbl.is Ekki fengið nein svör frá ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband