Leita í fréttum mbl.is

Skelfilegar leiðindaskjóður og heimskulegur málatilbúningur þeirra

saudnaut.jpgÞað mega núverandi þingmenn þó eiga, að þeir eru, allir sem einn, Andskotanum leiðinlegri og er þó Andskotinn eitthvert leiðinlegasta fyrirbrigði sem til er. Einnig má þakka þingmönnum fyrir að halda afburða heimskulegum málum í gíslingu. Það er meira að segja ofrausn að halda umræddu fjandans kjaftæði í gíslingu, það á að fara með það í sorptunnuna og gæta þess að starfsmenn Sorpu kasti þeim alveg örugglega í eldsofninn.

Mér varð, fyrir slysni að sjálfsögðu, litið rétt áðan á alþingisrásina í sjónvarpinu og sá með eigin augum hverskonar leiðindaskjóður og kjánarassgöt eru tiltlaðir ,,alþingismenn" nú til dags. Þetta lið er eins og fjöldaframleitt drullujukk úr háborgaralegri og kapítalískri lágmenningarverksmiðju, og er vissulega fráleitt á vetur setjandi. Best væri að setja þingið af og hið sósíalíska alþingi götunnar tæki við stjórnartaumunum og hreinsaði almennilega til í skítahraugunni og sprautaði spillingarvilpunni oní niðurfallið.

En það er semsagt gott að sem fæst mál séu undir núverandi kringumstæðum, fari í gegnum klærnar á núverandi þingmennum; einkum er nauðsynlegt að bægja svokölluðum ,,málum" stjórnarandstöðu frá, því þau eru öll sem eitt eins og óráðshjal langdrukkins manns í göturæsinu. Þó verður að segjast, að fettur og brettur, glennur og geyflur forsætisráðherra eru ansi hlálegar, ekki síst þegar hún reynir að gera sig líka Dónaldi Trump í andlitinu. 


mbl.is Meirihlutinn haldi málum í gíslingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband