Leita í fréttum mbl.is

Hefileg mistök fundarboðenda geta kostað Eyþór stólinn

kol27.jpgHelstu samtök hinnar kapítalísku græðgi á Íslandi voru svo geðsleg og hugvitssöm að halda opinn fund í Gamla bíói í morgun, hvar helstu helstu taglhnýtingar þeirra í borgarstjórnarframboði í vor voru mættir á svið. Því miður varð fundarboðendum á ein herfileg reginskyssa, sem var að setja ekki kókkassa eða elhúskoll undir sinn bestmann í framboði, Eyþór Arnalds. Fyrir vikið náði þessi helsti frambjóðandi SA og Sjálfstæðisflokksins rétt með herkjubrögðum að teygja nefið upp fyrir borðröndina og tilsýndar úr sal leit hann út eins og hvur önnur japlandi femínístakérlíng sem nýbúin er að gleypa kústsskapt eða frosna gulrófu.

Í öðru lagi varð atvinnurekendasamtökunum á að bjóða ekki örlitlu nasistaflokkunum og Flokki fólksins til gleðinnar í Gamla Bíói, en umræddir flokkar eru ákafir aðdáendur kapítalisma, Trumps og annarra slíkra vandræðamanna. Að vísu tóks hinum fundarglöðu atvinnurekendum að sneiða hjá að bjóða sósíalískum illvikjum úr Sósíalístaflokknum og Alþýðufylkingunni í bíó, enda hefði því fólki verið trúandi til að barna hina dásamlegu helgistund með ósæmilegu tali um auðvald, arðrán og arðræningja.

Eftir að hafa hugleitt málið síðan um hádegi, hafa góðviljaðir menn komist að þeirri niðurstöðu, að samtök auðvalds og arðráns verði að endurtaka fundinn atarna í bíóinu Gamla og vera þá búið að gera ráðstafanir til að þeirra uppáhalds frambjóðandi, Eyþór Arnalds, líti út fyrir að vera um það bil tveir metrar að hæð, eða meira. Heill og hamingja Eyþórs og möguleikar hans til að verða borgarstjóri ræðst ekki hvað síst að hann gnæfi yfir aðra frambjóðendur uppi á sviði í virðulegu kvikmyndasýningahúsi, sem eftir bíóöld varð um hríð athvarf óperuöskrara. Því þarf að muna eftir að lyfta honum á stall á næstu sýningu á frambjóðendum þóknanlegum samtökum kapítalista.    


mbl.is Vilja fylgjast betur með AirBnB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

eg hef rökstuddan grun um að fjölmargir kallar í baklandi Sjálfstæðisflokksins styrki með sameiginlegu átaki framboð Alþýðufylkingarinnar og  Sósíalístaflokkinn með umtalsverðu fé.  Allt er þetta gert með svörtum hætti eins og þeir eru sérfræðingar í.

Kristbjörn Árnason, 9.5.2018 kl. 20:24

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er þá þokkalegur andskoti ef rétt er að ábyrgir menn séu að fleygja péníngum í soleiðis.

Jóhannes Ragnarsson, 9.5.2018 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband