Leita í fréttum mbl.is

Yfirsjakalinn brýnir knífa sína fyrir lokaorrustuna

úlfurÞetta líkar mér, að yfirskrifsjakalinn á kontor ASÍ skuli bretta upp á trýnið og urra og hósta á þennan Ragnar og saka hann um offors. En það er nú offorsið á ASÍ kontórnum, þar halda menn ró sinni, svo lengi sem enginn finnur að SA/ASÍ bandalaginu yfirsjakalans; sá sem gagnrýni það eðla bandalag er uppfullur af offorsi, gott ef hann er ekki alvarlega geðveikur og ætti bara alls ekki að ganga laus.

Með bros á vör hefir nú yfirsjakalinn lagt brandi sínum í hausinn að fúlmenningu Ragnari og vonar að lagið muni duga til að Ragnar standi ekki upp meir. Og fullan hug hefir sjakalinn, að fara með liði að Húsavíkur-Aðalsteini, Skaga-Villa og Sólveigu þeirri Önnu, sem tróð sér með frekju og dólgshætti til forustu í Eflingu í óþökk sjakalanna, og jafna þau öll sem eitt við jörðu, því þetta illa fólk er trúandi til alls, til dæmis að espa launafólk upp á móti sínum herrum og vinnuveitendum og valda þeim tjóni, eða hreinlega að efna til grimmilegrar byltingar, sem ekki mundi ljúka fyrr en síðasti arðræninginn væri lagður á flótta eða, sem hræðilegra væri, kominn í gröfina.

Það er ekki nema von að vellaunaður skrifstofusjakali í virðulegum kontóri grípi til vopna og kalli á vini sína í atvinnurekendasamtökunum til liðsinnis við þá skjakalana gegn offorsi Ragnars og hans venner. Vér getum, sem betur fer, reitert oss á liðveislu atvinnurekenda gegn óþokkum sem ætla að stela verkalýðshreyfingunni úr höndum atvinnurekenda, skrifstofusjakala, ríkisvaldsins, Sjálfstæðisflokksins. Verst er að málstaður skrifstofusjakalanna stendur ákaflega völtum fótum, enda er hann gerður úr efnum eins og lygi, baktjaldamakki, óheiðarleik, slepjulegri hræsni borgarastéttarinnar, krataeðlinu og hagræðilegum sjónhverfingum. Eins og staðan er nú, er heldur líklegt að senn ljúki dansi skrifstofusjakala ASÍ með auðvaldsperrunum kringum gullkálfinn og Drottinn Mammón taki þá til sín í hymmnaríki pénígana.     


mbl.is Segir Ragnar fara fram með offorsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Já, þetta er nú meiri farsinn.  Síðan (svo ég noti þínar líkingar) styðja hýenur við sjakalana: framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs gengur m.a.s. svo langt að hún líkir Ragnari við Trump hvað falsfréttir áhrærir (http://www.visir.is/g/2018180519789/ser-likindi-med-malflutningi-ragnars-thors-og-donald-trump)

Langt er nú gengið í darraða-gullkálfs-dansinum.  Kannski ekki langt í að einhver hrópi: lifi byltingin og táragasið streymi við Austurvöll.

Ragnar Kristján Gestsson, 11.5.2018 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband