Leita í fréttum mbl.is

Kisikis og kallinn í klípu

cat.jpgÞá ætlar kisikis að klóra soldið yfir kukkinn úr sér í þeirri von að vonda og ljóta fólkið hætti að senda sér tóninn og fari aftur að mæta á tómleika hjá Helga Björns og Nýdanskri. Jájá, og kallinn, sem er víst stjórnarformaður Hörpu, hamast líka við að klóra yfir sinn hroða og hefir í öllum hamaganginum gleymt að rífa uppum sig buxurnar og gyrða sig. Það er sem sé óttalegt klamburball á eignunum og leikslok óviss.

En það er víst sama hvað kisikis og kallinn klóra og klóra, kukkurinn er löngu kominn í stofusófann og eigendurnir æfir. Það getur víst varla farið a annan veg en framkvæmdastjórinn, stjórnin, kisikis og kallinn verði hrakin með skít og skömm úr Hörpunni; jafnvel ekki útilokað að hersingin verði rekin á fjöll og látin búa þar við kjör Eyvindar og Höllu til frambúðar. Svo er nú það.

rat1.jpgHið eina viturulega sem hinir bersyndugu sófakukkarar og brunnmígar úr Hörpunni geta gert úr þessu er að láta sig hverfa áður en trylltur múgurinn ræðst inn í tómlistarhöllina miklu og sópar þeim eins og hvurjum öðrum músavað út í höfn. Gvöð gefi að það gerist ekki. 


mbl.is Beiðnin tekin fyrir 30. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband