Leita í fréttum mbl.is

Bláskógaberserkurinn og berserkir Víga-Styrrs

vik.jpgÞað getur verið þrautin þyngri að halda berserk, hvað þá berserki. Eins og menn muna, þá var tvemur sænskum berserkjum troðið upp á kappann Víga-Styrr, en þeim viðskiptum lauk með því að Víga-Styrr neyddist til að kæfa berserkina í gufuþró í Berserkjahrauni. Bláskógaberserkurinn er líka illur viðskiptis og ódæll og íllt við að eiga þar sem aðferð Víga-Styrrs við berserki er tæplega leyfileg nú til dags.

Þó verður að segjast eins og er, að viðleitni lögregluþjóna til að taka á berserksvandamálinu í Bláskógabyggð með því að láta berserkinn keyra útaf á ofsahraða, minnir dálítið á aðferð Víga-Styrrs, nema hvað Víga-Styrr hefði seint kallað á þyrlu til að flytja berserkina hálfdauða á sjúkrahús, hefðu þyrlur og sjúkrahús verið til í þá daga. Og víst er um það, að Árnesingar hafa fengið sér dugmikið yfirvald í stað stjörnusýslumannsins Stones, sem tekinn var af þeim og settur yfir óaldalýð Suðurnesja.

En messtur akkur er samt lista Nýs afls í Bláskógarbyggð af berserknum og tiltektum hans hraustlegum. Samkvæmt fregnum er berserkur þessi í öðru sæti Nýs afls til sveitarstjórnarkosninga í Bláskógabyggð og er viðbúið að framboðið fái mjög mikið fylgi út á berserkinn; stjórnmálafræðingar telja, að eftir berserksgang frambjóðandans, flótta hans og loks þyrluferð, fái Nýtt afl vart undi 85% fylgi og krafa muni koma fram eftir kosningar að berserkurinn verði skipaður sveitarstjóri, oddviti og hreppsstjóri.


mbl.is Meta stöðuna eftir berserksgang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband