Leita í fréttum mbl.is

Ef fullur Skagamaður sæi Kristján

hvala4Ekki á af veslingnum honum Stjána í hvalnum að ganga þessa daganna. Ekki er nóg með að hann hafi plammað sig út út Granda með milljarða á milljarða ofan í vestisvasanum heldur teiknar Skaga-Villi hann upp í dag sem einn ósannindamann, skrökvara og yfirleitt kolrangan náunga í hvívetna. Og hvað er að því að Kristján vilji að hans eigin þrælmenni borgi gjöldin í litlaust værðarverkalýðsfélag í Borgarnesi í stað þess að moka þeim í strigakjaftinn á Skaga-Villa, sem notar þá til að rífa kjaft við Guð og góða menn eins og Stórhvelið í glervöruversluninni?

Vissulega er ,,Stéttarfélag Vesturlands" líkar dofnum beiningamanni á gangstéttinni, svo sem nafnið bendir til, en byltingarsinnuðum félagsskap, og Krisjáni milljonér í Hvalnum er, sem von er, hálfpartinn í nöp byltingar og bolsévism. Og hvað er þá eðlilegra en mikilmenni og skörungur og taðhvalur skipi þrælum sínum að styðja ígildi stéttarfélags dauðra kálfa.

Svo held ég væri best fyrir Kristján í Hvalnum, sá skörungur og eftirmaður Péturs Þríhross sem hann er, að vera ekkert að þvælast uppi á Skaga á næstunni, því Skagamenn geta verið viðsjárverðir og illir viðfangs. Ef fullur Skagamaður sæi Kristján, segjum á rúntinum á einhverri götu Akraness, væri sá hinn sami vís með að hlaupa á bílinn, velta honum við og reka milljonerann út og handfjatla hann þar til hinn mikli forstjóri og fjáraflamaður færi að hrína eins og sandlægja. En sandlægja er eitt lítið stórhveli, blauðara en ófiðraður gæsasteggur.  


mbl.is „Um grófar hefndaraðgerðir að ræða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband