Leita í fréttum mbl.is

Um þekktan eiturefnahernað á hafi úti

sjóÞetta líkar mér að heyra. Að farið sé að rækta salmónellur hrá íslenskum farmönnum er bara hreint afbragð. Og ekki er að efa að salmónellur frá slíkum görpum og hrafnintumönnum verða vinsælar meðal fólksins og með tímanum góð búbót í atvinnutækifærum og gjaldeyrisöflun vegna útflutningsverðmæta salmónellunnar. Já, þetta tókst matsveininum á fraktaranum að rækta upp og gera að veruleika. Það lætur ekki að sér hæða íslenska hugvitið og snillin. 

Þá koma upp í hugann frægir matsveinar í íslenska flotanum sem refsuðu áhöfn sinni með því að hrækja, snýta sér og pissa í súpurnar og sósurnar, já og meira að segja út í deigið sem urðu að brauðum og pönnukökum. Einum þessara fræknu matsveina varð það á reyna að byrla drengjunum sínum kukk í sósunni. Því miður komst athæfi hans upp. Sá matsveinn kom ekki í land og hefir ekki neitt til hans spurst síðan. Þeir tóku sem sé kauða á milli sín, leiddu hann aftur á rassgat og köstuðu honum út um lagningsopið. Og mikið hlógu strákarnir að því á eftir hvað helvítis kokkurinn hafði æpt og beðið Guð að hjálpa sér þegar hann fauk út um gatið.

Annar matsveinn eitraði aftur á móti fyrir stýrimanninum með rottueitri, hann vildi nefnilega komast yfir kerlingu stýrimannsins. Það ætlaði að ganga treglega að kála helvískum stýrimanninum, því hann lét engann bilbug á sér finna af rottueitrinu, rak bara ívið meira við en vanalega og bölvaði fýlunni. Matveinninn var alveg að ærast á því að stýrimaðurinn sýndi ekki meiri merki um heilsubrest svo hann sturtaði heilum helling af vítissóda út í súpuna hjá karli og hugðist með því ganga frá mannhelvítinu fljótt og vel og í eitt skipti fyrir öll. En það fór heldur en ekki á annan veg hjá matsveininum því þegar strýrimaðurinn var búinn með helminginn af súpunni raka hann sig á að hún var full af baneitruðum vítissóda. Því stóð vor góði stýrimaður upp frá borðum, gekk yfirveguðum skrefum fram í elhús og greip matsveininn og heilsteikti hann hreinlega á brennheitri eldavélinni. Þegar kokkurinn var dauður og hættur að hljóða kastaði stýrimaðuinn honum fram í gang og sagði strákunum koma þessum óþverra í sjóinn. Og sá hlær best sem síðast hlær, því örlögin höguðu málum þannig, að það var stýrimaðurinn sem fíflaði kerlingu kokssins, en ekki öfugt eins og matsveinninn heitinn hafði áætlað.



mbl.is Heil áhöfn fékk iðrakveisu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

Minnir á Skripal málið.

Skrýtið þo að Hollendingar hafi ekki náð að tengja eitrunina til Russlands, svona miðað við að vera í Nato. 

Lárus Ingi Guðmundsson, 5.7.2018 kl. 13:16

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ekki er öll nótt úti enn fyrir þá að tengja eitrunina á fraktaranum til Pútíns.

Jóhannes Ragnarsson, 5.7.2018 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband