Leita í fréttum mbl.is

Þá Máría varð skapandi listamönnum að bráð

ingÞað er ekkert gamanmál að verða hórnum að bráð, það veit Máría Borgargagn kvenna best. Máría lenti í þeim fjanda að vakna upp einn morguninn berrössuð og öll útkrotuð. Og vissulega hafði hún verið að stunda hór þá um nóttina, en undir morgun hafði henni liðið í brjóst og því fór sem fór og djöfuls pakkið hafð sókt sér tússlit og skrifað allan fjandann á skrokkinn á henni.

Þegar ófétin mættu til yfirheyrslu hjá lögreglunni kváðust þau hafa skrifað á Máríu Borgargagn í listrænu skyni, tiltækið væri bæði myndlist og listrænn gjörningur með mjök dýpri meiningu. Vissulega varð Hálfdán lögregluvarðstjóri hálf-súr yfir svona svari og fullyrt að hinir meintu listamenn hefðu ekki haft skriflegt leyfi frá Borgargagninu til skreytinganna. En endemin voru ekki af baki dottin og sögðu Hálfdáni að hann hefði ekki svo mikið sem hundsvit á listum, það væru þau sem væru skapandi listamenn og þeirra list væri lifandi list.

En svo vér víkjum sem snöggvast að skrautlistinni sem samin var á nakin líkam Márí Borgargagns. Er þá fyrst til að taka, að ,,listamennirnir" Kolbeinn Kolbeinsson, Indriði Handreður, Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttu afréðu í byrjun að snoða helminginn af nárahærum viðfangsefnisins í brott þannig að aðeins helmingur náraflatarins væri hærður. Því næst skirfuðu þau það sem þeim þókti viðeigandi og skemmtilegt á húð Borgargagnsins, lá hreyfingarlaust og hraut gífurlega. Setningar á borð við ,,ég er skita og skammast mín fyrir það", ,,graðgljúfrasel" og ,,ég seldi Fjandanum meydóm minn" var meðal þess á kropp hennar vóru letraðar. Nú, so vaknaði Borgargagnið og allt fór í hund og kött, henni tókst meðal annars að koma slæmu höggi á leyndarlim Kolbeins með tennisspaða svo glumdi í. So, svo hljóp hún út um gluggann og niður á lögreglustöð og kærði listamennina fyrir Hálfdáni varðstjóra, sem varð svo hrifinn að hann lokaði Máríu Borgargagn, útkrotaða og berrassaða inni í fangaklefa hjá sér til næsta dags.  


mbl.is Skráði sig á vændissíðu undir dulefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband