Leita í fréttum mbl.is

Eftirmaður Júnkersins í Bræðratungu, Túre, Jes Ló og ESB-trúflokkurinn

fullurEf það er rétt að Júnkérinn hafi ekki verið svona blindfullur að hann valt um koll eins og kartöflupoki þá eru það verulega slæm tíðindi. Enn hlægilegra er, ef rétt er, að karluglan hafi hrapað út af sökum bakverkja en ekki brennivínvínsnautnar. Júnkerinn í Bræðratungu var heiðarleg íslensk fyllibytta, sem óð öskrandu fullur um sveitir á Suðurlandi, berjandi menn, nauðgandi konum og seldi loks ektakvinnu sína ódráttunum Túre Narfesen og Jes Ló svínahirði að Eyrarbakka. Hinsvegar fellur Júnker, tryggðavinur Samfylkingarinnar á Íslandi og viðreistu braskarasteggjana í Viðreisn, í svaðið án þess svo mikið að hafa selt eiginkonu sína, börn eða barnabörn.

Þó má hafa vissan skilning á ástandi Júnkarans, því undanfarna daga hefir hann mátt umgangast dreggjar auðvaldplágunnar hér á jörð. Það þarf meira að segja ekki mjög skilningsríkan mann til að skilja flótta hans frá öllu saman með aðstoð Bacchusar gamla brennivínskóngs. Að þurfa að vera stundinni lengur undir sama þaki og vitfirringurinn Trump, May íhaldsprinsessa af Bretlandi og hið kynduga fyrirbæri Katrín Jakobsdóttir frá Íslandi útheimtir mikla áfengisnautn á stuttum tíma, minnistruflanir, svartaþoku, óráðshjal og detta að síðustu meðvitundarlaus af alkóhólnautn í gólfið og liggja þar í evrópusambandslegu öngviti fyrir hunda og manna fótum. Á Íslandi kallast svona ástand ,,að vera dauður" og þykir fremur til fyrirmyndar fyrir þann dauða.

kol31.jpgOg fyrst þannig er í pottinn búið að Júnkeranum hjá ESB þykir sona undurgott að hafa í staupinu er tilvalið fyrir Samfylkinguna og Viðreisn að bjóða karlskepnunni til hressilegar samdrykkju. Það getur að sjálfsögðu boðið hænsnahernum í VG að taka þátt í drykkjunni og Katrínu að gagga upp dálitlum ræðustúf meðan setið er undir borðum. Þá væri upplagt fyrir þá í ESB-trúfélögunum að fara með gesti sína út á lífið í Reykjavík til að skoða næturlífið en þó einkum móðurlífið. Vonandi verða gestgjafar Júnkers, þeir samfylkingar- og viðreisnargosar ásamt hraksmánarhænsnunum VG, svo hugulsamir og ástríkir í garð gestsins að bera hann heim eftir að hafa verið úti á lífinu, en skilji hann ekki eftir í göturæsinu eins og hvern annan flækinghund sem drukkið hefur allt áfengið frá eiganda sínum og lagst fyrir þar sem hann var niðurkominn þá stundina.   


mbl.is Bakveikur - ekki fullur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Það er rétt, Juncker var blindfullur, enda hefur hann verið fyllibytta frá blautu barnsbeini. Þegar ókosnir embættisræflar eins og Juncker fá allt of mikil völd, þá fagna þeir óhóflega og geta síðan ekki hætt. Og kommúnistinn og hræsnarinn Katrín  (hatar NATO, USA og Trump, en fer samt á NATO-fund og skemmtir sér konunglega) hló að drykkjuskap hans á NATO-fundinum þegar hann gat ekki staðið í lappirnar. Þetta sýnir myndbandið. Ef hann hefði verið bakveikur, þá hefði hún ekki hlegið. Case closed.

Félagsskapurinn var geðslegur eða hitt þó heldur. Sá eini með viti var Trump, sem nú er í heimsókn í þessu volaða ríki Bretlandi sem allir forsætisráðherrar síðan Thatcher hætti hafa smám saman gert að skítaholu, nú síðast landráðakvendið, rassasleikjan og undirlægjan Theresa May (oft kölluð Sharia May).

Trump lét það ekkert á sig fá þótt nokkrir heimskingjar, þ.á.m. Sadiq Khunt hafi mótmælt og hann sýndi Boris Johnson stuðning. Vonandi hefur það þau áhrif að það verði hallarbylting í ríkisstjórninni og ESB-hórunni Shariu May verði kastað á haugana, enda eru margir álitlegir sem geta tekið við stjórninni: Boris Johnson, Liam Fox, David Davis og Jacob Rees-Mogg svo fáeinir séu nefndir.

Trump er fyrsti bandaríski forsetinn síðan JFK sem talar tæpitungulaust og skal hann hafa hrós fyrir það.

Aztec, 13.7.2018 kl. 14:04

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég ætla svo sem ekki að gera aðra athugasemd við þína athugasemd en þá, að leiðrétta að Katrín Jakobsdóttir hefur aldrei verið kommúnisti né annað í áttina að þeirri stjórnmálastefnu. Hún hefir verið ákaflega skoðannadauf, ómótuð og ruglingsleg í sinni pólitík, ef pólitík skal kalla. Hún er enda vaxin upp úr kynlegum anga borgarastéttarinnar, sem sé einum þeirra sem gert hefir sér að leik, áratugum saman, að láta aðra halda að þeir séu eitthvað til vinstri í samfélagsskoðunum. Sjálfstæðismenn og aðrir hægrislúbertar geta sofið rólegir meðan þeir hafa Katrínu Jakobsdóttur að spila með og þeir geta treyst því að hún mun ekki raska værð þeirra né draumförum.

Jóhannes Ragnarsson, 13.7.2018 kl. 14:40

3 Smámynd: Aztec

En hvort sem strengjameistari Katrínar, Steingrímur J. sé kommúnist eður ei, þá er það öruggt að hann er jafnmikill hræsnari of strengjabrúðan hans:

2002 - 2006: SJS hatast án afláts út í Sjálfstæðisflokkinn en leggur ekkert af mörkum sjálfur til að koma í veg fyrir hrunið.

Fyrir kosningar 2007: SJS biðlar bljúgur til Sjálfstæðisflokksins og vill í ríkisstjórn með erkióvininum.

Eftir kosningarnar 2007 og fram til kosninganna 2017: SJS hatast án afláts út í Sjálfstæðisflokkinn en tekur enga ábyrgð á fallandi fylgi flokksins vegna ógæfusamstarfsins við Samfylkinguna árum áður.

Eftir kosningarnar 2017: SJS orðinn æðsti maður þingsins og bezti vinur Sjálfstæðisflokksins og Katrín orðin bezta ástmey Bjarna Ben.

Svei mér ef veit hvor hvor sé meiri vindhani Steingrímur J. eða Bjarni Ben.

Aztec, 13.7.2018 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband