Leita í fréttum mbl.is

Í Dölum vestur fer frost skjaldan ofar en 20 gráður á celsíús en oft niður fyrir 40 gráður

joli_1244722.jpgMikið rétt, sennilega er Dalabyggð rétt austan við Búðardal, sem samsvarar því að Búðardalur sé staðsettur rétt vestan við Dalabyggð. Og þarna er helkuldi, ruddafenginn gaddur, um mitt sumar og þar frostþurrka bændur hey sín af drjúgu harðfengi. Heyannir Dalamann hefjast með því að þeir berja ís af heyvinnsluvélum sínum, traktorum, sláttuvélum, heyþyrlum og rúllubaggamaskínum. Þegar þeir eru langt komnir með að berja ísinn hella þeir óblönuðu ákavíti í sig í stórum skömmtum. Síðan, þegar þeir eru orðnir vel kenndir af ákavítinu, berja þeir meiri ís, fá sér meira ákavíti og rjúka að svo búnu af stað á dráttarvélinni með sláttuvélina í eftirdragi.

Það er sjón að sjá þessa daladrauga slá gaddfreðið grasið svo ísnálarnar þeytast í allar áttir. Þannig djöflast þeir dag og nótta, sólarhringum saman, í sex til átta vikur, en þá eru yfirleitt öll hey Dalamanna komin í hlöður, en hlöður sínar kalla þessir dárar frystikistur. Ekki fer hjá því að búfénaður þeirra þarna í Dalabyggð, rétt austan við Búðardal, þarf að hafa öflug meltingarverkfæri til að geta unnið úr beinfreðnum grasstráum og frostrósum, enda eru gripir þessir með kalt blóð og því kaldara sem frostið er meira.

Fyrir nokkrum árum gleypti kuldahross í Dalabyggð frosin njóla í ógáti um miðjan júlímánuð. Auðvitað varð uppi fótur og fit, því bændur þar um slóðir vissu ekki hvað kynni að gerast við svo válegar aðstæður. Njólinn var langur og nokkuð sver, hafði lengi staðið djúpfrosinn í túninu og var því afar seinn að þiðna og hrossið stóð í varpanum eins og skotið hefði verið steyputeini eftir því endilöngu og gat sig ekki hrært. Því brugðu Dalamenn á það þjóðráð að reyna að steikja dýrið á teini yfir langeldi. En þá logarnir fóru að leika um leggi og kvið, brjálaðist hestsandskotinn, sem reyndist meri í þokkabót þegar farið var að athuga málið, jós og prjónaði og hljóp á fjöll eftir að hafa sparkað undir hökuna á einum bændanna. Þann mann grófu í fönn á víðavangi laugardag fyrir verslunarmannahelgi.  


mbl.is „Það er frost!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband