Leita í fréttum mbl.is

Og þeir hlógu að annarlegum tiltektum hennar

steinbíturUm skeið hefir verið vitað að Steingrímur ætti ekki lengur pólitíska samherja, nema þessa Samherja sem skrifaðir eru með stóru essi og hafa þegið stórar útgerðartengdar gjafir frá Steingrími og lagsbræðrum hans í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkum Alþingis. Þess vegna reið á fyrir Steingrím að kynna nýjan pólitískan samherja sinn og starfssystur, forseta danska þingsins, frú Píu Kjærsgaard sem kölluð er grettla á íslensku út af svipnum á trýninu á henni. Og þennan líka þriflega nýja samherja vildi Steingrímur kynna fyrir þjóðinni á 100 ára fullveldisári Íslands. Hann er þjóðlegur maður Steingrímur, í vaðmálslörfum og roðskinnsskóm.

Svo var grettla látin, til hátíðarbrigða, halda ræðu á dönsku á Þingvöllum í gær fyrir gullsnúraða elítuna og var ekkert til sparað til að danskur rasismi og fasismi heyrðist um víðan völl og allt land. Hann var þungbúinn á Þingvöllum í gær líkt og á aftökudögum þar forðum þegar íslenskir horbúkar voru hýddir þar með leðurólum áður en þeim var lógað með eldi, öxi, í gálga, eða þeim var drekkt í poka í ánni sem rennur um völlinn. Og grettla og Steingrímur hoppuðu og hlógu og hrópuðu gaman gaman morsomt morsomt!

Svo voru það lukkuriddarar Pírata og Helga Vala, sem héldu elítudaginn hátíðlegan með því að fóðra athyglissýki sína vel og vandlega með pólitískum yfirlýsingum um að þau væru ekki eins vond og gretlan Pía Kjærsgaard og heldur ekki eins ósmekkleg og ógéðsleg í sér og Steingrímur og samherjar hans í ríkisstjórninni og LÍÚ. Þegar Pía kerlíng sóð upp á Þingvöllum til að flytja þinginu dálítin ræðustúf um nauðsyn rasisma og fasisma rann upp kjörið tækifæri fyrir Helgu Völu, þá háborgaralegu glanspíu, og hún reis sem fornaldareðla upp á þinginu og strunsaði á brott, og bæði Jón Hreggviðsson og Sigurður Snorrason böðull, sem báðir voru viðstaddir í tilefni dagsins, hlógu að Helgu Völu og annarlegum tiltektum hennar og Jón lét þau orð falla að nú létu hundar sér ekki lengur nægja að míga allir utan í Sigurð böðul heldur væru þeir og farnir að gera Helgu Völu, glanspíu borgarastéttarinnar sömu skil.


mbl.is Krefst svara frá forsætisnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Það hefði verið hægt að fá gamlan skeggjaðan handritasérfræðing til  stíga í pontu í staðin fyrir Píu. Jafnvel einhvern sem hefði mælt á íslenska túngu, nú ellegar alveg þagað og flett gömlum blöðum t.d. Þjóðviljanum.

Þá hefður píratar haldið kjafti. Þeir voru ekki búnir að googla kerlinguna og vissu því ekki hver hún er og henni fylgdi ekkert farmskírteini eða sjúnnall eða ferilskra. Svo Píratar eru alveg í rétti að gera athugasemd. Einnig hefði verið hægt að láta danskan leikara fara með eitthvað kvæði t.d. um hæsta fjall Danmerkur. Það hefði verið gaman. Íslendingar hafa svo gaman af kvæðum. Þá hefði verið hægt að láta þingheim syngja um Þórð kakala Það hefði verið hægt að vera með morgunleikfimi og láta þann danska gera teygjur.

Það vantar alveg hugkvæmina hjá Steingrími. Hann þarf að fara á leiklistarnámskeið.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 19.7.2018 kl. 08:20

2 Smámynd: Aztec

Þú hefur greinilega ekki hugmynd um hvað fasismi og rasismi er, Jóhannes.

En enn og aftur gerðu jihadistarnir í Samfylkingunni og Pírötum sig að fíflum. Nú síðast Jón Þór, sem er einn af hundunum sem þú vísar til, sem reynir að míga utan í vinkonu mína, Piu Kjærsgaard, en endar með að míga í vatnsból allra Íslendinga eins og brunnpissarinn úr Íslendingasögunum, sem þú væntanlega þekkir til. Maður undrast alltaf hvað Jón Þór er utangátta í þinginu. Það er eins og hann sé alltaf að koma af fjöllum, er aldrei að fylgjast með og veit aldrei hvað sé sé í gangi. Vonandi kemst Pírataflokkurinn aldrei í ríkisstjórn, því að þá yrði eintóm ringulreið og vitleysa í allri stjórnsýslunni.

Að Helga Vala hafi farið skiptir engu máli, good riddance of bad rubbish segi ég bara. Og það væri góð hugmynd að senda Loga Einarsson á dönskunámskeið, því að hann kann ekki stakt orð í því tungumáli.

Aztec, 19.7.2018 kl. 10:53

3 Smámynd: Aztec

Ég rakst á þessa afsökunarbeiðni frá Íslendingi á facebook-síðu Piu Kjærsgaard:

"Hej, Pia.

Som islænding vil jeg undskylde den ubehøvlede modtagelse du fik på Þingvellir i dag fra nogle af de tilstedeværende.

Jeg vil understrege at disse repræsenterer et meget lille mindretal blandt det islandske folk. Nemlig de venstreorienterede tosser som vil åbne alle grænser på vid gab og som hele tiden ævler om nationalismens ofre, men som aldrig har en tanke tilovers for sharia-lovens ofre. Folk som givetvis hader nationalstaters suverænitet."

Vel mælt.

Aztec, 19.7.2018 kl. 11:03

4 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Ha ha :-)

Níels A. Ársælsson., 20.7.2018 kl. 06:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband