Leita í fréttum mbl.is

Fársjúk af krataeðli.

kamar.jpgÞar er fyrst til að taka að Heiða Björg er stútfull af krataeðli, sem gerir það að vekum að hún þvaðrar endaleysu eins og langdrukkin stútungskerling við hvurn mann. Verst er þetta veika fólk þegar það kemst í fjölmiðla, útvarp og sjónvarp og soleiðis, því þar er því hætt að vaða elginn, bulla, þvæla, ljúga upp stórlygum eins og þessum 1000 íbúðum sem urðu allt í einu til í höfðinu á Heiðu í morgun. Það er ekki sanngjarnt að kalla þetta þekkingarleysi því sona tilhlaup að sannleikanum í raunheimum er vegna þess að heilinn er dofinn af krataeðlinu og viðkomandi fórnarlambi krataeðlisins er ekki sjálfrátt.

Það segir sig sjálft, að sonalöguð framkoma Heiðu og krataeðlisfylkingarinnar í Reykjavík verður ekki liðin mikið lengur. Þennan geldfénað verður að leiða út við fyrstu hentugleika, til dæmis á miðvikudag eftir verslunarmannahelgi. Þá er nauðsynlegt að koma í veg fyrir að krataeðlissjúklingar fái fleiri tækifæri til að bera á borð stórlygar í fjölmiðlum; gott ráð væri að troða sokkum eða nærbuxum upp í trantinn á kratakindunum ef fjölmiðlar eru í nánd og banna þeim þannig að breiða út sjúkar afbakanir og svæsnar lygar á borð við þessar 1000 íbúðir sem aðeins eru til í rassborunni á fólki, fársjúku af krataeðli.

Nú liggur og fyrir, óumdeilanlega, að helvítis framsóknarvírusinn er eins og hressandi vítimín í samanburði við krataeðlið og seint mun framsóknarvírusinn fella fólk fyrir aldur fram, eða verða þess valdandi að nauðsynlegt sé að loka það inni á einangrunarstofum eða einsmanns klefum á vitfirringahælum. Því miður eru öll sjúkrihús og hæli löngu sprungin vegna innlagna á fárveiku krataeðlisfólki og starfsfólkið búið að gefast upp. En svo allir njóti sannmælis er rétt að geta þess, að bæði framsóknarvírusinn og krataeðlisbaktérían eru sóttkveikjur upp úr kapítalismanum, sem að sjálfsögðu er hin versta drepsótt sem mannkynið hefir mátt takast á við og búa að.


mbl.is Hafa áhyggjur af þekkingarleysi Heiðu Bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Þú hefur rétt fyrir þér, að kratarnir (Svikafylkingingin), hvort sem þeir eru á þingi eða í borgarstjórn er hraðlygið ógæfufólk.

Hvað varðar Framsókn, þá hlýturðu að vera því feginn að sá flokkur datt réttmætlega út úr borgarstjórn eftir að hafa hent Sveinbjörgu út, sem hafði reddað flokknum tveimur sætum árið 2014. Talandi um að saga greinina sem þeir sátu á.

Nú hefur Sósíalistaflokkurinn, Flokkur fólksins og Miðflokkurinn ásamt Sjálfstæðisflokknum (með nýjan öflugan oddvita í stað aumingjans Halldórs) myndað öfluga andstöðu við jihadistaflokkana þrjá sem hafa fengið meirihluta sæta í borgarstjórn, þrátt fyrir að hafa fengið færri atkvæði en andstaðan.

Það er upplagt að þegar Dagur & Co. hafa leyst niður um sig án afláts næstu fjögur árin og fengið dugleg spörk í rassgatið aftur og aftur næstu fjögur árin, þá muni landráðaflokkarnir þrír fá hverfandi fylgi og nýr ólyginn meirihluti tekur við, sem tekur á raunverulegum vandamálum. 

Sósíalistaflokkurinn hefur tekið að sér það hlutverk sem VG hefði átt að hafa, en sem gerði ekki, þar eð sá flokkur er upptekinn við að velta sér upp úr femínískum tittlingaskít.

Þegar þú skrifar: "að bæði framsóknarvírusinn og krataeðlisbaktérían eru sóttkveikjur upp úr kapítalismanum, sem að sjálfsögðu er hin versta drepsótt sem mannkynið hefir mátt takast á við og búa að", þá er það ekki rétt. Mesta drepsóttin er islam og sharia. Næstmesta drepsóttin er krataeðlið.

Þá er málið afgreitt.

laughing

Aztec, 4.8.2018 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband