Leita í fréttum mbl.is

Og öll borgarstjórnin þjónaði honum eins og englaskari af Hymmnum

perAuðvitað tímir hann ekki baka vöpplur ofan í Reykvíkinga enda aungar kosninga í vor og þar með óþarfi að vera með lýðskrum og uppgerðaralþýðlegheit. En svona er nú krataeðlið: tóm sýndarmennska, auðvaldssleikjukapur og loddaramennska. Fyrir nokkrum dögum skjögraði þetta kratanúmér áfram á hækjum, af því hann var með gigt eins og góði dátinn Svejk, en á menningarnótt ætlar hann að hoppa um göturnar eins og fjallageit. Ætli maðurinn hafi komist á andarnefjulýsi til að smurja á knén á sér, eða tók Grunstein læknir hann til meðferðar og læknaði hann eins og skot?

Nú hafa komið fram óskir þess efnis að Brynjari Vondulykt verði ekki hleypt út á menningarnótt og er því borið við að hann sé illa skemmtanavandur maður, ófyrirsjánlegur í aðgerðum og af honum leggi almenn óþrif, mengun og mannvonska og þá ekki síður kvennvonska. Í morgun, á þriðjudagsmorgni, sá á eftir þessum óþrifagemlingi hvar hann skeiðaði eins og önd á eftir tveimur túristakerlingum og mátti sjá langar leiðir hvaða erindi hann í við þær. Þetta var á miðjum Fríkirkjuveginum. Og hann komst aftan að annrri þeir og sveiflaði henni út í tjörn, hvar gæsirnar tóku í móti henni, en hinni kvinnunni dröslaði hann á eftir sér uppmeð Fríkirkjunni og hugðist taka hana frillutaki þar að kórbaki.

Öll borgarstjórnin, að flækjuhærða kratahöfðingjanum meðtöldum, horfðu á aðfarir Brynjars Vondulyktar út stórna glugga á Ráðhúsinu og aunginn, segi og skrifa aunginn, hreyfði legg eð lið ferðakonunum til bjargar þó auðsætt væri að misyndisverk væri í uppsiglingu við Fríkirkjuna. Það var þá sem aldurhnigin portkona, reykvísk að atvinnu, margelfd við hvurja raun, sá hvað verða vildi og hraðaði sér á vettvang. Um það bil sem hún snaraðist fyrir hornið að kórbaki var Vondalyktin að því komin að fá vilja sínum framgengt, og sú sem fór í tjörnina var í óðaönn að fara úr blautum leppunum. Portkonan aldraða sá að ekki mátti tæpara standa og greip um illalyktandi hreðjar Brynjars Vonulyktar og teymdi hann eftir sér meðfram kirkjunni, yfir strætið og út að Tjörn, en þar kastaði hún honum af hendi á hauin út í vatnið. Skipti engum togum að þar var nær drukknaður Brynjar Vondalykt og hefði sjálfsagt dáið þar ef borgarstjórnin hefði ekki öll komið þjótandi til að bjarga honum, leiða hann til stofu Ráðhússins þar sem hann var traktéraður á rótsterku og heitu sykurkaffi og enn rótsterkara brennivíni. Og Vondalyktin fór ofan í nærbuxurnar sínar og dró þaðan upp dulítinn, vatnsheldan plastpoka með hvítu dufti og fékk sér rækilega í nefið af því; og öll borgarstjórnin þjónaði honum eins og englaskari af Hymmnum.


mbl.is Ekkert vöfflukaffi hjá Degi í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband