Leita í fréttum mbl.is

Svartaþoka báðar leiðir hjá Gvöndi Inga í Grænlandsferð hans

Folk-med-haus-i-sandi_1408691242Það er aungvu líkara en ferð þingmansins Gvöndar Inga til Grænlands hafi verið ferð án fyrirheita og því síður tilgangs og leiðin hafi verið öll verið gegnum svartan þokumökk, eður blinhríð, með biluð siglingartæki. Ekkert kemur fram í fréttinni hvort Gvöndur Ingi hafi verið einn á ferð eða hvort hálft eða allt þingliðið hafi hafnað á langdýrasta hotéli í Nuuk og dvalið þar óvissan tíma í einni bullandi villu og skammarlegu líferni.

Já, ferð Gvöndar Inga til Nuuk er sannarlega dularfull því hún virðist hafa verið til einskis um ekki neitt en pénígum samt spreðað eins og skít úr skítadreifara í allar áttir. Og hvað ætli Grænlendingum hafi þókt um þennan skringilega söfnuð af Íslandi sem birtust þeim eins og blindar geimverur, óskiljanlegar, flissandi og púandi. Og þegar Grænlendingu bætast við óhuggulegar fréttir af Íslandi um að blinda Alþingsmanna sé svo ofboðsleg að það verði að setja upp ljós fyrir 20 milljonir svo geti lesið bókstafi af blaði utan dyra um hásumarið, þá sól er hæst á lofti, þá er hætt við að þeim falli allur ketillinn í eld. 

gapÚr því að sona tókst til með fyrstu utanlandsreisu Gvöndar Inga fyrir þingið er nauðsynlegt að Gvöndur gjöri enn betur grein fyrir ferð sinni og lýsi henni fyrir alþjóð í smáatriðum. Ef Gvöndur vill ekki eða getur ekki staðið fyrir máli sínu verður að láta rannsóknarlögreglun um að upplýsa þetta andskotans reginhneyksli, sem Gvöndur, kallgreyið, rataði í á dögunum. Og þegar málið er upplýst verður óhjákvæmilegt að taka fram gapastokkana og leyfa hinum seku að dúsa í þeim í nokkra daga á Austurvelli, drykkjurútum og dópæskunni til ljúflegrar skemmtunar.


mbl.is „Þetta var rán­dýr ferð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Ja nú hafa glirnur þínar brugðist, því það er tekið fram í fréttini að vitlausrahælið við Austurvöll hafi sent 10 manns á þennan fund, til að samþykkja ja sjálfsagt einhverja bölvaða vitleysu. Eitt helvítis bruðlið með aurana okkar.

Hjörtur Herbertsson, 18.9.2018 kl. 21:16

2 Smámynd: ViceRoy

Haha þú ert mitt mesta uppáhald í bloggheimum :D af því verður ekki skafið. Snillingur

ViceRoy, 18.9.2018 kl. 21:20

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er nú það, Hjörtur, þá er, miðað við ástandið, engum tölum að treysta að svo komnu máli varðandi fjölda þeirra sem fóru fyrir hönd Hælisins til Grænlands. Eina vonin um að komast til botns hvað það varðar er bundið við leynilögregluna okkar. En það er samt borin von að lögreglan átti sig á nokkru fremur en Gvöndur kallanginn. 

Jóhannes Ragnarsson, 18.9.2018 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband