Leita í fréttum mbl.is

Ný heilsuvá í uppsiglingu; læknar tala um faraldur og jafnvel drepsótt

threy.jpgÞó svo að nikótínprangarinn þyrfti að borga heilt ráðhús fyrir að fá að manga með rafknúna vindlinga og það sem þeim við kemur væri það áættanlegt fyrir oss skattborgarana. Fyrir nú utan hvað sona rafmangsreykingar eru ánalegar og gera þá sem þær stunda fáránlega á velli, þá er þetta óhollur fjandi sem leiðir grandalausan kjanann út í harðari neyslu,Camelreykingar, Half and Half, síðan svart tóbaksgums upp í nasirnar og undir varirnar, loks undir forhúðina og upp í veslings rassboruna; þá er tóbakshringurinn fullkomnaður og tímabært að fara að undirbúa útför hins tóbaksóða manns eða konu.

Nú eru vísindamenn í Bandaríkjunum farnir að kanna hvort slík nikótíngredda, eins og hér hafin með roforkuvindlingunum, sé ekki líklegt til að leiða neytendur út í kókaínnautn og eftirsókn í kynsvall með vandalausum. Þetta er í alla staði merkileg vísindarannsókn og til þess fallin að sanna svo ekki verði um villst, að nikótínfíkn, knúin rafurmagni, muni geta af sér alvarlega heilbrigisvá, hnignun á siðferði og félagslegt öngþveiti. Þá munu menn sjá, að ekki er of mikið að sá sem vill höndla með annan eins subbuskap og viðbjóð greiði sem svarar andvirði ráðhúss fyrir eitursöluleyfið.

Þó er alverst hvernig rafmagnsrettureykingar fara með neytendur. Á hverjum degi þjóta sjúkrabíla þvers og kruss um höfuðborgarsvæðið undir fullum ljósum og sírenublæstri, þeirra erinda að flytja útúrveipaða ofreykingaaumingja nær dauða en lífi á sjúkrahús. Og sumir ná ekki einsinni lifandi á spítalann og fara beint í gráðugar lúkurnar á líkistusmiðnum. En þá sem með lífsmarki eru verður fyrst að vaska upp í rýminu þar sem sjúkrabílarnir eru þvegnir, því fórnarlömb raforkunikótínsins byrja ævinlega á að gera í buxurnar þegar nautnin svífur á þá og þurfa sjúkrfluningamennirnir iðulega að klippa fatalarfana utan af sjúklingunum og verka þá með strákústi upp fyrir herðar. Og hvernig haldið þér, vinir mínir, að ástandið og fýlan sé í sjúkrabifreiðinni eftir að rnulaus veipari hefir verið fluttur í honum upp á sjúkrahús til að rayna að bjarga lífi hans?


mbl.is Borga „heilt raðhús“ fyrir leyfin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband