Leita í fréttum mbl.is

Hvað segir frú Ingveldur um sona slumm?

ingv7_1209144.jpgHvur fjandinn sjálfur er það eiginlega sem kemur errilegum og konum til að slumma á aðrar konur eins og karlmaður væri. Hún Madonna hefir sett so mikið niður hjá fjöldanum öllum as saklausu og heiðarlegu fólki út af þessu háttarlagi, og semir segja að þeir nái sér aldrei meir. Við vonum bara til Guðs almáttugs, að Madonna frétti ekki af framferði skemmilega klobbaklípisins á Íslandi og fari að hafa eftir honum ósiðina.

En frú Ingveldi er andskotans sama um hvernig Madonna hagar sér. Þegar hún var spurð hvað henni þætti um Madonnu, svaraði hún aðeins: - Þú getur slummað mig á rassinn upp á það, að hún Madonna væri velkomin í helgarsamkvæmi heima hjá mér. Já. Þá býður manni loks gurn í hvað fram fer í þessum helgarsamkomum frú Ingveldar og Kolbeins, enda hefir ýmisligt flogið fyrir um vafasamt hátterni manna og kvenna á þeim samkomum.

Það er það. Og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður og Brynjar Vondalykt sáust slumma á hvorn annan úti á miðri götu fyrir framan heimili Kolbeins um hábjartan dag. Börnin, sem vóru vöknuð og voru á vakki í götunni og sáu til þeirr kompána voru þegar í stað drifin í áfallahjálp og til meðferðar hjá sálfræðingum, til að lágmarka skaðann sem þau urðu fyrir á sálinni. Kolbeinn sagði aftur á móti þegar honum var sagt frá þessu, að bölvaðir krakkafjandarnir væru gersamlega sálarlaus kvikindi eins og rotturnar og mínkarnir. Þar með var það mál útrætt af hans hálfu.


mbl.is Konurnar sem Madonna hefur kysst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband