Leita í fréttum mbl.is

Skýrt brot á mannúðar- og barnaverndarlögum

flengHann verður að skilja það, knattspyrnuþjálfarinn hjá Framsókn, að svona er nú krataeðlið og við því er ekkert að gera meðan vísindin finna ekki upp lyf gegn því. Þá er knattspyrnuþjálfaranum nauðsynlegt, að taka tillit til þess að Ágúst litli Ágústsson Einarssonar ríka, er óviti sökum æsku, ofdekraður, marklaus og gengur enn í stuttbuxum og pampers. Vér sjáum það öll, að út frá mannúðar- og barnaverndarsjónarmiðum, að það er fyllilega ljótt að horfa upp á rummungsstóran fóboltaþjálfara á besta aldri og framsóknarmann að auki taka smá-svein upp af götunni og flengja hann á fullu með sigggrónum hrömmum fyrir framan alla íslensku þjóðina.

Enda var Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður kallaður á vettvang til að bera klæði á vopn og leiða fótboltatarfinn á brott og færa hann gömlu Framsóknarmaddömunni í Framsóknarfjósinu til hirtingar. Á leiðinni til Framsóknarfjóssins kom Kolbeinn við á hverri knæpu og tjóðraði skjólstæðing sinn við fánastöng eða hliðstólpa meðan hann fékk sér nokkra röndóttótta. Nú, Framsóknarmaddaman er þegar búin að lofa, að gefa litla drengnum með krataeðliskranleikann nýjan pampers á botninn í staðinn fyrir pampersinn sem fór í mauk við barsmíðar boltamannsins. Vér kunnum að vera sammála um að það er fallega gert af Maddömunni.

Í ljóðabálknum ,,Þröng eru göng" segir svo á einum stað:

Að senda eiginmann sinn út á lífið með pampers á skvernum
er eins og að bjóða gestinum að éta húsöndina með fiðrinu á.
Og ljót pólutík er eins og skítabragð af ísnum sem þú færðir mér á jólunum.
Nú skulum vér hlaupa út á strætið með tjaldhæla, eins og keipastelpan í ráðhúsinu.
Eins og einsogin í ljóðum leirskáldanna
eru dæmd til að fjúka ljóslaus út í buskann
án þess nokkur veiti þeim eftirtekt.
Á ströndinni stunda máfarnir kynsvall í skjóli náttmyrkurs.
En á vígvellinum er eitthvert mannfall í skjóli krataeðlisins. 


mbl.is „Ljót pólitík gagnvart viðkvæmum hópi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband