Leita í fréttum mbl.is

Heilnæmar eru heimaunnar sláturvörur

ærHér um árið andaðist eitthvað af sauðpéníngi hjá Ólafi bónda úr bráðapest. Og Ólafur bónd var ekkert að tvítóla við hlutina, verkaði hið fallna fé, fláði það, tók innan úr og brytjaði ketið niður og auglýsti sláturmarkað í túnfætinum heima hjá sér. Fólkið kom og keypti afurðirnar af sálfdauðu fénu og át það án þess að kenna sér meins. Og þó,- einhverjir úr hópnum urðu einkennilega skammlífir eftir bráðapestarketið; það var eins og bráðapestin hefði hlaupið í fólkið og drepið það.

Vilhjálmur heitinn skólastjóri keypti hrygg og læri af sjáfdauðu hjá Ólafi bónda og greindist stuttu síðar með höfuðveiki, sem lýsti sér þannig að kallinn sturlaðist og hljóp fyrir björg. Sigurbjörg, merk kona og grandvör, matbjó frampart frá Ólafi og skipti engum togum, að þegar hún var að bera á borð rann hút til á eldhúsgólfinu og endastakkst niður um kjallaralúguna, sem er þar á eldhúsgólfinu, og hálsbrotnaði. Þriðja tilfellið, sem rekja má til ólöglegrar kjötsölu Ólafs bónda, var dularfullur bráðadauði konunnar Kristínar Kristjánsdóttur, en digur lundabaggi úr góssi Ólafs stóð svo harkalega í henni að hún bókstaflega kafnaði við eldhúsborið, steindrapst og velti borðinu um í dauðateygjunum. Af þessu getur fólk séð, að ólöglegt kjöt drepur, að ekki sé talað um ket af skepnum sem þurfti ekki einusini að slátra.

Ólafur bóndi sjálfur hefur aungva skoðun á þessum andlátsmálum og vísar því á bug að ket af sjálfdauðum pestarrollum eigi þar nokkurn hlut að máli. Samkvæmt hans reynslu sé ekkert að því að matreiða og eta þessháttar fénað. Því til sönnunar hefur hann margsagt frá því þegar hann fann löngudauðan hest úti í hrauni, hann var búinn að liggja þar í minnst þrjá til fjóra mánuði, hlutaði hann niður og hafði heim með sér. Húsfreyja Ólafs bar síðan hestinn á borð fyrir fjölskylduna, ýmist soðinn eða steiktan, og þau átu hann alveg upp til agna, en hundarnir fengu beinin. Því miður hljóp einhver fjandans hundur í Snata, smalahund Ólafs bónda, út af þessum hrossbeinum, sem varð til þess að hann myrti húsbónda sinn á lævísan hátt; hann stjakaði sem sé við Ólafi bónda neð trýninu þegar hann stóð á blábrún hamraveggs nokkurs; það var sextíu faðma fall niður í hrottalega grjóturð.

 


mbl.is Kærðu sölu á kjöti af heimaslátruðu til lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband