Leita í fréttum mbl.is

Matseðillinn á grímudansleiknum á Bessastöðum

xb3.jpgSamkvæmt áreiðanlegustu heimildum sem fáanlegar nú til dags, þá er þingflokkur Miðflokksins í óðaönn, í þessum töluðum orðum, að vígbúa sig, því þingflokkurinn ætlar að vera víkingasveit í glimmerglansveislunni á Bessastöðum í kvöld. Gyrtir sveðjum og öxum, með skildi og spjót og atgeiri ætla þau að ösla fótgangandi á konungs fund og höggva hvurn þann ólánsbesefa er á vegi þeirra verður. Fremstur fer stafnbúi Miðjuflokksins, með öxina Rimmugýji upp reidda til höggs, en lestina mun reka helsta griðkona Miðjunga, vopnuð fjósaskóflu þess albúin að leggja hana flata við trýnin á kynsystrum sínum á þingi.

Á þessari stundu er alls óvíst hvort umrædd veisla verði annað en móttökuathöfnin ein en heldur líklegt verður að telja að hún breytist á augabragði í hlálega fólkorrustu með drjúgu mannfalli, brestum og blóði. Má vera að margur knár kappinn verði út borinn á völlinn, hröfnum til gottgjörelsis, eftir að leikurinn ,,hjólum í tíkina" hefir verið leikinn. Má og einnig vera að hröfnum verði bumbult af að graðga í sig fallna þingmenn, en sem kunnugt er, þá er bannað með lögum að eitra fyrir ref og varg. Og það get ég sagt yður satt, að fátt er ókræsilegra en hrafn með niðurgang, fljúgandi úm loftin blá, dritandi yfir mannfólkið; hrafnsniðurgangur er eitraður eins og krataeðlið og framsóknarvírusinn og vís með að drepa hvurn þann er hann lendir á.

So er matseðillinn hjá kokknum á Bessastöðum forvitnilegur í kvöld. Þar veður meðal annars á borðum svartbakapaté sem og hvalsauga í hunangskonnjakki. Þá er vert að geta haugsaladsins, sem gert er úr sérvöldu og verkuðu taði úr hænsnakofanum á Bessastöðum. Og yfir borðum vokir svo atburður síðasta sólarhrings, Miðflokkshneykslið, eins og þrumuský, til bragðbætis öðrum réttum.     


mbl.is Forsetinn tekur á móti þingmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband